fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Undirbúningur fyrir útför Margrétar Þórhildar Danadrottningar er langt á veg kominn

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 10. apríl 2018 06:50

Verður Hróarskelda höfuðborg Danmerkur?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Undirbúningur fyrir útför Margrétar Þóhildar II Danadrottningar er langt á veg kominn. Mörgum kann að þykja þetta undarlegt í meira lagi enda er drottningin við góða heilsu og sinnir embættisverkum sínum. Drottningin er nú 78 ára gömul og á afmæli næstkomandi mánudag. En það er ekki ráð nema í tíma sé tekið þegar kemur að því að undirbúa útför drottningarinnar því undirbúningurinn hófst fyrir 15 árum síðan og er nú á lokametrunum.

Það var fyrir 15 árum sem drottningin og listamaðurinn Bjørn Nørgaard byrjuðu að ræða hvernig gröf drottningarinnar eigi að líta út. Úr varð að listamaðurinn hannaði glerkistu sem kista drottningarinnar verður sett inn í. Glerkistan verður skreytt með bronsi. Drottningin verður lögð til hinstu hvílu í Dómkirkjunni í Hróarskeldu eins og venja er með þjóðhöfðingja Dana.

Í síðustu viku komu síðustu hlutar glerkistunnar frá glerverksmiðjunni Lhotsky Studio í Tékklandi en þar var kistan, sem jafnframt er minnismerki um drottninguna, gerð. Grafstæði drottningarinnar er því við að verða tilbúið.

BT hefur þetta eftir Lars Band Petersen, framkvæmdastjóra Hróarskeldusóknar.

Ekki er um neina léttavöru að ræða og þurfti krana til að koma kistunni inn í kirkjuna. Petersen sagði að verið væri að leggja lokahönd á grafstæðið, því verki átti upphaflega að ljúka í árslok 2017 en það hefur dregist aðeins. Hann sagði að verkið væri langt komið og væri á lokametrunum.

Sá hluti kirkjunnar þar sem drottningin verður lögð til hinstu hvílu hefur verið alveg lokaður af fyrir almenningi á meðan á þessum framkvæmdum hefur staðið en mikil leynd hefur hvílt yfir verkefninu.

Áætlaður kostnaður við verkið er 29 milljónir danskra króna en það svarar til um 465 milljóna íslenskra króna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar