fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Sveinn Hjörtur segir búið að stela jólunum: „Bjórdrykkjumenn fagna sínum jólum með ærlegri drykkju“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 13. október 2018 11:45

Sveinn Hjörtur Guðfinnsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sveinn Hjörtur Guðfinnsson, einn stofnenda Miðflokksins og jólasveinn að eigin sögn, segir að kaupmaðurinn sé búinn að stela jólunum með ofsa sínum og græðgi. Hann segir jólaatið hefjast allt of snemma vegna taugaveiklunar kaupmanna. Þetta segir hann í bloggi sínu á Eyjunni.

„Ég telst vera jólasveinn. Ég á við algjör jólasveinn, eins og Ketill Larsen heitinn og Ómar Ragnarsson. Ég hef verið að í 34 ár hver einustu jól í desembermánuði. Síðustu árin voru með Hjálpræðishernum í Reykjavík. Þetta „jobb“ er líklega það skemmtilegasta sem ég hef nokkurn tímann tekið þátt í – og mun taka þátt í. Tugir jólaböll, þúsundir heimsókna, og endalaus gleði. Það er einmitt ólýsanlegt að sjá glampann og gleðina, vonina og þetta augnablik barnsins; „loksins er Sveinki komin!“,“ segir Sveinn Hjörtur.

Hann gagnrýnir hvernig hinar ýmsu vörur séu tengdar við jólin. „Jólaatið hefst í ágústmánuði, næstum fjórum mánuðum fyrir jólin. Taugaveiklun kaupmannsins um það að hefja maraþonið og kappið um þessa hátíð sem er í raun í nokkra daga, er með ólíkindum. Það verða allir að gera þetta og gera hitt. Heilu þættirnir í sjónvarpi og útvarpi snúast um jólin. Raftæki, húsgögn, matvörur og annað breytist í það að verða „jóla.“ Jólakókómjólk, jólajógúrt, og nú er meira að segja sérstakur jólabjór sem mætir í bæinn og bjórdrykkjumenn fagna sínum jólum með ærlegri drykkju enda „takmarkað magn.“ Aðrir hversdagslegir hlutir breytast í „jóla.“ Það er kaupmaðurinn sem stelur jólunum með ofsa sínum og græðgi. Það er kaupmaðurinn sem breytti jafnvel jólasveininum og klæddi hann í bláann búning til að aðlagast verslun sinni. Það er kaupmaðurinn sem telur okkur í trú um það að jólin hefjist – ekki nema…,“ segir Sveinn Hjörtur.

Hann segist muna aðra tíð. „Ég man eftir jólunum þegar þau fengu að koma með þeirri eftirvæntingu sem þau báru með sér. Þau hófust í bíltúr að Rammagerðinni í Reykjavík þar sem jólasveinarnir þar voru mættir, einmitt til kaupmannsins sem kom með þessa hlið jólanna, en með skynsamlegum hætti – hann byrjaði í desembermánuði. Hljóðlaus andardráttur jólasveinanna var dularfullur og framandi. Við gluggann þráði maður að tala við Sveinka, fá að snerta hann. Ég man líka þegar kveikt var á Óslóartrénu og jólasveinarnir skemmtu á þaki Nýja Kökuhúsins við Austurvöll og Ketill Larsen var hver einustu jól, eða þar til ég svo vissi hver var bakvið gervið. Ég man þegar Gáttaþefur söng fyrir börnin – og ég söng með,“ segir Sveinn Hjörtur.

Honum blöskrar ofsinn hjá kaupmönnum. „Jólin er hátíð og tilgangurinn er að gleðjast og fagna. Við njótum og gefum af okkur – og frá okkur. En við kaupum ekki þessa gleði með einum einasta hætti. Engin jólakókómjólk eða jólabjór gefur okkur þá gleði sem jólin eru. Ef eitthvað er þá kemur jólabjórinn með sér aukið svoll um þessa hátíð sem er hátíð barnsins. Mér hefur blöskrað ofsinn í kaupmanninum og atið við að reyna að selja okkur jólin, selja okkur þá hugmynd að jólin hefjist, ekki nema…,“ segir Sveinn Hjörtur.

Hann segir að lokum að fólk eigi að leyfa sér að vera einlægt um jólin: „Jólin koma og þau fara. Hvað skilur eftir er mesta verkefni okkar. Hvernig minnumst við jólanna og hvernig gleðjumst við. Við eigum að fá að hafa jólin í friði, laus frá þessari ótukt sem búið er að skapa. Við eigum að fá að vera einlæg og kannski einföld yfir jólin. Við eigum að fá að hafa kirkjuna og helgihald hennar. Við eigum að fá að hlusta á messuna í útvarpinu. Við eigum að fá að hafa grunngildi kristninnar – ef við viljum. Við eigum ekki að láta kreddur hræða okkur og því síður að láta kaupmanninn telja okkur í trú um það að jólin hefjist í ágúst. Ég er líklega farin að eldast og telst vera of gamaldags. Ég verð líklega skammaður af kaupmanninum, bjórdrykkjumönnunum, jógúrtgerðarmanninum, og þeim sem halda ekki jól. En hvað get ég sagt? Ég er jú bara jólasveinn…“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar