fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Björgunarsveitarfólk áhyggjufullt yfir gjaldtöku bílaleiga á Íslandi: „Láta ríkið í að skattleggja bílaleigur fyrir þessum kostnaði“

„Gengur ekki að við séum notuð sem frí þjónusta fyrir fólk sem situr fast en er ekki í hættu“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 28. janúar 2018 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björgunarsveitarfólk hefur áhyggjur af gjaldi bílaleiga á Íslandi fyrir að sækja bíla sem ferðamenn þurfa að yfirgefa vegna ófærðar og óveðurs. Mikil umræða hefur verið um málið í Facebook-hóp Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Björgunarsveitarfólk ræðir einnig um kostnað björgunarsveita við að losa fasta bíla. „Gengur ekki að við séum notuð sem frí þjónusta fyrir fólk sem situr fast en er ekki í hættu,“ segir einn björgunarsveitarmaður. Annar stakk upp á að ríkið skattlegði bílaleigur fyrir dráttarkostnaði.

DV hafði samband við nokkrar bílaleigur til að kanna kostnað við að sækja bíla. Það er mismunandi eftir aðstæðum hvað bílaleigur innheimta mikið hverju sinni. Hjá einni bílaleigunni sem DV hafði samband við er lágmarksgjald fyrir að sækja fastan bíl 45 þúsund krónur og bætist kílómetragjald þar ofan á.

Há „gjaldskrá“

Meðlimur hópsins á Facebook segist hafa heyrt af svo kallaðri „gjaldskrá“ bílaleiga þar sem kostnaður við að skilja eftir bílaleigubíl sökum ófærðar og óveðurs hlaupi á nokkrum tugum þúsunda.

„Hafa einhverjir tekið eftir hvort þetta hefur áhrif á okkar vinnu í ófærðar- og óveðursútköllum. Er fólk tregara að yfirgefa bíl sinn eða er meiri þrýstingur á að við losum bílana?“

Einn segist hafa heyrt af slíku atviki í útkalli í Mosfellsheiði. Annar gagnrýnir ferðamenn sem hunsa veðurspár:

„Á meðan veðurspár eru hunsaðar og fólk fer um víðan völl án þess að hafa nokkra glóru með í farteskinu þá endar það með kostnaði fyrir bílaleigur að sækja bílana sína þegar þeir eru skildir eftir. Ég held þetta flokkist undir kapítalisma … Sjálfboðaliðarnir hlaupa síðan frá sínum verkefnum til að sinna verkefnum opinberra aðila, eyðandi fé sem er búið að afla með ótal vinnustundum. Alveg galið, segi ég.“

Einn björgunarsveitarmaður segir frá útkalli á Mosfellsheiði. „Þar var einn ferðamaður í hópnum sem hafði samband við sína bílaleigu og fékk uppgefið að það kostaði ca. 600 USD að láta bílaleiguna sækja bílinn. Það þótti honum frekar mikið og endaði á því að panta Yaris hjá annarri bílaleigu í sólarhring á 43 USD til að fara morguninn eftir og sækja fasta bílinn upp á Mosfellsheiði. Við lánuðum honum skóflu sem hann skilaði daginn eftir.“

Fá ríkið til að skattleggja

Einn maður segir að það gangi ekki lengur að kalla frítt út björgunarsveitir fyrir hættulaust ástand. „Það verður bara að fara að taka ákvörðun um heildræna stefnu í þessum málaflokki. Gengur ekki að við séum notuð sem frí þjónusta fyrir fólk sem situr fast en er ekki í hættu.“

Annar björgunarsveitarmaður segir: „Það er spurning að láta ríkið í að skattleggja bílaleigur fyrir þessum kostnaði svo hann renni þá til viðbragðsaðilanna.“

Margar björgunarsveitir losa ekki og draga fasta bíla

Í hópnum var einnig mikil umræða um ábyrgð þeirra sem draga bíla og ástæðu þess að margar björgunarsveitir draga ekki fasta bíla þar sem hætta er ekki aðsteðjandi. Segir einn meðlimur:

„Sá sem dregur er ábyrgur fyrir farartækinu sem togað er í. Ef fólk vill losa bílinn og bíllinn er á veginum þá er það bara skófla 101. Ef bíllinn er utan við veg = Vaka, Krókur og dráttarbílaþjónustur af sama meiði. Við erum þarna til að bjarga fólki en ekki til að losa alla fasta bíla.“

Nokkrir björgunarsveitarmenn ræddu um hvort björgunarsveitir hefðu heimild til að rukka ferðamenn fyrir að losa bíla.

„Það er óheimilt [fyrir björgunarsveitir að] undirbjóða í samkeppnisrekstri. Við eigum auk þess að forðast að taka verkefni af verktökum sem hafa lifibrauð af verkefnum af þessu tagi. Sé engum verktaka til að dreifa er ekkert því til fyrirstöðu að sinna verkefninu.“

Myndin tengist réttinni ekki beint.
Myndin tengist réttinni ekki beint.

Væri ekki ódýrt í útlöndum

Einn meðlimur hópsins spyr hvort það hafi verið reynt að fá undanþágu eða betri tryggingar á björgunarsveitarbíla þannig að tryggingar dekki kostnað verði skemmdir við að draga bíla. Því er svarað á þann veg að það sé ekki framkvæmanlegt.

„Við megum ekki vera feimin við að rukka túrhestinn fyrir eðlilega vinnu. Ef ég lendi í árekstri í Þýskalandi þá kostar það ekki undir 250–500 evrum að láta draga bílinn. Í Bretlandi getur það kostað um 250 GBP að draga bíl af þjóðvegi,“ segir einn björgunarsveitarmaður.

Útlendingarnir þakklátir

„Við hættum fyrir nokkrum árum að draga bíla og aðstoðum við ansi marga vegfarendur á Hellisheiði á hverjum vetri. Ef bíllinn stendur á veginum er bara „lítið“ fastur þá drögum við upp skóflurnar og förum að ýta. Ef bifreiðin er meira föst en svo að hægt sé að moka og ýta án þess að vinnan standi fram á vor þá bendum við þeim á dráttarbílaþjónustu og bjóðum við fólkinu sæti í bifreiðum okkar og frítt far niður af heiðinni,“ segir björgunarsveitarmaður og heldur áfram:

„Viðbrögðin eru oftast þannig að útlendingar verða voðalega þakklátir að komast úr þessum aðstæðum en Íslendingar spyrja stundum hvort að eða af hverju við drögum ekki bílinn. Þegar við útskýrum fyrir þeim að við höfum hætt að draga vegna ábyrgðar okkar við að bjarga öðrum með tilheyrandi kostnaði ef eitthvað kemur upp á og að okkar hlutverk sé að bjarga fólki eða verðmætum frá yfirvofandi tjóni eða hættu, þá skilur fólk okkur bara mjög vel og spyr hvort það sé einhver dráttarbílaþjónusta í Hveragerði sem við getum bent þeim á. Vandamálin verða ekki mikið stærri en svo.“

Að lokum segir hann að margar dráttarbílaþjónustur séu á þeirra svæði ólíkt hjá mörgum björgunarsveitum úti á landi.

Mismunandi verð hjá bílaleigum

Einn björgunarsveitarmaður sagðist hafa heyrt ólíkar upphæðir fyrir að draga bíla: „Tölurnar sem við fengum voru 10.000, 50.000 og 150.000.“

DV hafði samband við nokkrar bílaleigur til að kanna kostnað við að yfirgefa bíl vegna ófærðar og óveðurs. Það sem einkenndi svör á öllum bílaleigunum sem DV talaði við var að kostnaður færi mikið eftir aðstæðum og staðsetningu hverju sinni.

Skiptir máli hvort það þurfi dráttarbíl eða ekki

DV ræddi við Reyni Daða Hallgrímsson, stöðvarstjóra hjá Bílaleigunni á Akureyri.

„Þetta er metið út frá því sem er í gangi, ófærð eða veðri eða einhverju svoleiðis, þá reynum við að halda kostnaðinum alveg í lágmarki. Reglan hjá okkur, ef það þarf að nota dráttarbíl því bíll er fastur, út af veginum eða eitthvað svoleiðis, er að rukka 200 krónur á kílómetrann. En ef ég get sent starfsfólk á fólksbíl daginn eftir þá er það eitthvert samningsatriði sem tekur mið af aðstæðum. Ef um óviðráðanlegar aðstæður eins og óveður er að ræða þá reynum við að halda kostnaðinum alveg í lágmarki,“ segir Reynir.

Aðspurður hver væri þá kostnaður fyrir kílómetrann segir Reynir hann vera í kringum hundrað krónur á kílómetrann.

Lágmarksgjald 45 þúsund

„Kostnaðurinn er mjög mismunandi. Það fer eftir akstri. Maður reynir náttúrlega alltaf að finna næstu aðila. Það eru hinir og þessir aðilar sem eru að gera út á þetta. Þeir fara þá og draga og rukka samkvæmt kílómetragjaldi,“ sagði starfsmaður hjá bílaleigunni Hertz.

„Kílómetragjaldið er 300 krónur. Hjá okkur er það þannig að ef viðskiptavinir þurfa björgun þá er lágmarksgjaldið 45 þúsund og kílómetragjaldið bætist ofan á það, ef þarf að kalla út „rescue-bíla“ eins og við köllum þá. En ef tveir starfsmenn geta farið á fólksbíl og sótt bílinn sjálfir þá erum við ekki að rukka þetta þjónustugjald og lækkum kílómetragjaldið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar