Kjararáð getur varla hóstað án þess að það misbjóði almenningi. Í hvert sinn sem laun æðstu ráðamanna eru hækkuð er það upp á tugi prósenta og jafnvel með afturvirkum launahækkunum. Meira að segja fjármálaráðherra hefur sagt að núverandi fyrirkomulag sé ónýtt og að fækka þurfi þeim sem heyra undir ráðið. Enginn efast um að eitthvað eða einhver þurfi að ákvarða laun þeirra sem hafa ekki samningsrétt en nú þegar eru til slík fyrirbæri á vegum ríkisins. Sem dæmi má nefna að Tryggingastofnun er með sérstaka reiknivél sem reiknar út greiðslur lífeyristrygginga, það væri hæglega hægt að breyta henni til að reikna út launahækkanir embættismanna.