Kynferðisbrot á skemmtistað – Óspektir í sólarhringsverslun
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt. Um miðnætti var tilkynnt um slys í Mosfellsbæ þar sem kona hafði fallið af hestbaki. Farið var með hana í sjúkrabíl á spítala en meiðsl hennar voru ekki talin alvarleg. Hún er grunuð um að hafa riðið undir áhrifum.
Á sama tíma var óskað eftir aðstoð lögreglu við að fjarlægja tvo ölvaða menn úr sólarhringsverslun í austurborginni. Þeir höfðu angrað bæði starfsfólk og viðskiptavini verslunarinnar og sýnt ógnandi tilburði. Þegar lögregla reyndi að visa þeim burt veitti annar þeirra harða mótspyrnu. Lögregla náði að yfirbuga hann og var hann fluttur á lögreglustöð.
Um tvöleytið í nótt var maður í annarlegu ástandi handtekinn á skemmtistað í miðborginni. Hann er grunaður um kynferðisbrot gagnvart konu og að hafa ráðist gegn dyravörðum staðarins sem hugðust vísa honum út. Hann er nú vistaður í fangageymslu en málið verður rannsakað frekar.
Nokkuð var um önnur brot tengd ölvun í gærkvöldi og nótt. Einn maður var handtekinn í gærkvöldi á heimili sínu grunaður um heimilisofbeldi. Annar handtekinn laust fyrir klukkan fjögur í nótt fyrir óspektir á almannafæri. Fjórir ökumenn voru handteknir, grunaðir um akstur undir áhrifum annað hvort áfengis eða fíkniefna.