fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Ásmundi er illa brugðið og biður þjóðina afsökunar

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 28. mars 2017 15:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég sem þingmaður vil biðja þjóðina afsökunar,“ sagði Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Alþingi í dag. Hann vildi biðjast afsökunar á því að hafa stutt United Silicon og greitt götu fyrirtækisins.

„Ég sem þingmaður vill biðja þjóðina afsökunar á því að hafa greitt götur fyrirtækis sem fengið hefur hundruð milljón króna stuðning skattgreiðenda að byggja upp rekstur en greiðir starfsmönnum sínum laun sem eru grundvöllur að taxta sem er undir tekjuviðmiðum í landinu.“

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar fór þess á leit í vikunni að fyrirtækinu yrði lokað á meðan ekki væri búið að finna leiðir til að draga úr mengun. DV greindi fyrst frá því á föstudaginn að sextán mismunandi krabbameinsvaldandi efni, svokölluð PAH-efni, sjö þungmálmar og brennisteinn berast með svifryki frá kísilmálmverksmiðju United Silicon. Þetta er staðfest í skýrslu Umhverfisstofnunar sem dagsett er þann 13. mars síðastliðinn. Þar kemur fram að niðurstöður á greiningu sýna frá mælistöð United Silicon, sem staðsett er við Hólmbergsbraut, hafi meðal annars sýnt fram á að hið eitraða efni arsen hafi mælst yfir umhverfismörkum.

Ásmundur sagði í pontu að fyrirtækið hefði lítil eða engin tök á mengun frá rekstri fyrirtækisins í Helguvík. Það væri í allskonar málarekstri við verkalýðsforystuna, fyrirtæki og bæjarfélagið. „Og vinnur hvorki með eða fyrir samfélagið.“ Honum sagðist vera illa brugðið að frétta af mengun fyrirtækisins og sviknum loforðum.

Fyrirtækið hefði hlotið ýmiskonar fyrirgreiðslu með afslætti á sköttum og gjöldum. Þá greiddi fyrirtækið laun samkvæmt launataxta sem væri undir tekjuviðmiðum en bætti það upp með 65 þúsund krónum í bónus í hverjum mánuði.
Launin væru 450 þúsund krónur á mánuði samanborið við 600-700 þúsund í álverum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar