Rúmlega 36 þúsund ferðamenn komu til landsins í janúar síðastliðnum en um er að ræða aukningu upp á 75 prósent. Heildarfjöldinn er álíka mikill og í júnímánuði 2015.
Þetta kemur fram á vef Túrista. Að jafnaði tóku fimmtíu farþegarþotur á dag á loft frá Keflavíkurflugvelli og fór ein vél af hverjum sex til London.
Alls innrituðu rúmlega 37 þúsund íslenskir farþegar sig í flug frá landinu en aldrei hafa aldrei hafi fleirir Íslendingar farið til útlanda í janúar.
46,7 prósent allra ferða voru á vegum Icelandair en 29,4 prósent á ferða voru á vegum WOW air. Að jafnaði sátu fleirir farþegar í hverri flugferð WOW air en skýra má að því leyti að WOW air hefur yfir að ráða stærri þotur en Icelandair.