fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Egill spyr hvort VG muni klofna: „Í þetta skiptið gæti eitthvað svipað gerst“

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 13. nóvember 2017 16:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Vinstri græn samþykkja að fara í formlegar stjórnarmyndunarviðræður við Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn og maður verður var við alls kyns flog á netinu, eins og til dæmis þetta frá Merði Árnasyni, fyrrverandi þingmanni Samfylkingarinnar,“ segir Egill Helgason í pistli á Eyjunni.

Þar fer Egill yfir tíðindi dagsins þess efnis að VG, Sjálfstæðisflokkur og Framsókn muni fara í formlegar stjórnarmyndunarviðræður. „Flogið“ sem Egill vísar til hér að ofan má sjá hér að neðan:

Egill bendir á að það séu ekki nema níu af ellefu þingmönnum VG sem greiða því atkvæði að fara í viðræðurnar. „Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Andrés Ingi Jónsson segja nei – og það birtist mynd af Rósu á göngum þinghússins þar sem hún er í peysu og með trefil, eins og hún sé á leiðinni burt,“ segir Egill sem veltir því upp að hugsanlega sé VG flokkur sem á mjög erfitt með að fara í ríkisstjórn.

„Síðast þegar VG var í stjórn brast flótti í liðið vegna málamiðlana sem voru gerðar við Samfylkinguna. Margir VG-arar upplifðu samningana við Evrópusambandið sem meiriháttar svik – rétt eins og tilfinning sumra er nú vegna samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn. Í þetta skiptið gæti eitthvað svipað gerst, Rósa og Andrés gætu til dæmis sem hægast gengið í Samfylkinguna, í raun er sáralítill munur á VG og Samfylkingunni þegar ESB málið er frá – eins og það verður væntanlega næstu árin,“ segir Egill.

Hann bendir á að ríkisstjórn VG, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks hefði að óbreyttu 35 þingmenn sem telst þokkalegur meirihluti. Án Rósu og Andrésar hefði stjórnin 33 þingmenn, sem er mun tæpara.

„Bæði Sjálfstæðisflokkur og Framsókn virðast hafa sætt sig við að Katrín Jakobsdóttir verði forsætisráðherra. Það er ekki sjálfgefið. Hér áður fyrr hefði Sjálfstæðisflokkurinn aldrei sett sig undir stjórnmálamann úr röðum flokks sem er hallur undir sósíalisma. Þetta kann líka að verða umdeilt innan flokksins. Katrín, þessi vinsæli stjórnmálamaður, er í sérkennilegri stöðu. Hún hefur á rúmlega ári átt kost á að verða forsætisráðherra og forseti Íslands – og nú aftur forsætisráðherra. Lætur hún það sér úr greipum ganga?“ spyr Egill sem segir að Katrín eigi varla annan möguleika varðandi stjórnarmyndun en þann sem nú verður kannaður.

„Stjórn fimm flokka, VG, Samfylkingar, Pírata, Flokks fólksins og Viðreisnar, með aðeis eins manns meirihluta virðist ansi fjarlægur möguleiki. Sumir láta sig dreyma um það – eða þá að Framsókn halli sér aftur á vinstri vænginn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar