fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Sögusagnir um líkfund við Hvaleyrarvatn fjarri sanni

Múgæsingur á samfélagsmiðlum í nótt í tengslum við hvarf Birnu

Kristín Clausen
Miðvikudaginn 18. janúar 2017 07:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekkert nýtt hefur komið fram í sambandi við hvarf Birnu Brjánsdóttur sem hefur nú verið saknað í 4 sólarhringa. Laust eftir miðnætti í gærkvöldi fór af stað þrálátur og mjög hávær orðrómur á samfélagsmiðlum um að lík hefði fundist við Hvaleyrarvatn. Orðrómurinn átti ekki við nein rök að styðjast. Björgunarsveitir sem leitað hafa að Birnu eru hættar leitinni. Upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir þó að sveitirnar verði í viðbragðsstöðu ef fram koma nýjar vísbendingar í málinu.

Sögusagnir

Grímur Grímsson, stjórnandi rannsóknarinnar á hvarfi Birnu, sagði í samtali við DV í nótt að lögreglu hafi ekki borist nein tilkynning um líkfund. Hvorki í síma neyðarlínunnar 112 né með öðrum hætti. Samt sem áður var tekin ákvörðun um að fara á staðinn.

„Þetta voru sögusagnir sem lögreglan fylgdi í þetta skiptið en það er nú vanalega ekki gert. Við förum ekki nema eftir staðfestum upplýsingum en núna var sú ákvörðun var tekin að kanna málið við Hvaleyrarvatn, sem hefði í raun ekki þurft að gera.“ sagði Grímur í samtali við fréttastofu RÚV nótt.

Mikill múgæsingur greip um sig á samfélagsmiðlum í tengslum við málið í gærkvöldi og í nótt. Grímur benir á að það geti að vissu leyti verið skiljanlegt þar sem fólk er hrætt og það hafi miklar áhyggjur af málinu.

Enginn handtekinn

Þá greindi RÚV frá því laust eftir miðnætti að enginn hafi verið handtekinn um borð í skipinu Polar Nanuq og enginn hafi verið yfirheyrður með stöðu grunaðs manns. Þetta var haft eftir Grími Grímssyni, sem stjórnar rannsókn málsins.

Skömmu áður fullyrti Kvennablaðið að í það minnsta tveir áhafnarmeðlimir hafi verið handteknir. Fréttin var uppfærð skömmu eftir að Grímur sagði engan grunaðan í málinu. Þá sagði í viðbót við frétt Kvennablaðsins

„Tæknilega gæti verið að mennirnir séu enn ekki með réttarstöðu grunaðra og ef það er tilfellið þá er auðvitað ekki um eiginlega handtöku að ræða, eins og fyrirsögn Kvennablaðsins gaf til kynna nú laust fyrir miðnætti, heldur yfirheyrslu yfir mönnunum og þess vegna er verið að fara með þá með skipi til lands.“

Kvennablaðið fullyrti einnig að Birna hafi verið í samskiptum við áhafnarmeðlim á TInder kvöldið sem hún týndist en engin staðfesting hefur þó fengist á því.

Fréttablaðið greinir frá því í morgun að forsvarsmenn Polar Seafood, fyrirtækisins sem á grænlenska togarann Polar Nanoq, hafi sjálfir tekið ákvörðun í gærkvöldi um að snúa skipinu við og sigla aftur til Íslands.
Þá segir að skipverjar séu hissa og ringlaðir vegna frétta frá Íslandi og þótt undarlegt að ekki hafi verið haft samband við þá frá danska herskipinu Triton, sem fjölmiðlar greindu frá í gær að sigldu til móts við skipið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar