TF-SIF stóð skipin að verki

Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, stóð tvö skip að meintum ólöglegum veiðum út af Austfjörðum fyrr í dag.
Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að skipin hafi verið á sæbjúgnaveiðum en samkvæmt reglugerð atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins eru sæbjúgnaveiðar bannaðar á svæðinu þar sem skipin voru við veiðar.
Skipunum var í framhaldinu vísað til hafnar þar sem skýrsla var tekin af skipstjórum skipanna.