Finnur Árnason, forstjóri Haga
Finnur Árnason, forstjóri Haga
6.204.000 kr.
Forstjóri verslunarrisans Haga, Finnur Árnason, var með rúmar sex milljónir króna í mánaðarlaun í fyrra. Finnur, sem hefur starfað hjá Högum frá stofnun fyrirtækisins, er því með yfir 70 milljónir í árslaun. Laun forstjórans hafa verið bitbein í umræðunni en árið 2014 lagði Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda og fulltrúi Gildis lífeyrissjóðs í stjórn Haga, fram tillögu um að ráðningarsamningur Finns yrði endurskoðaður og laun hans lækkuð um helming. Stjórnarformaður Gildis sagði síðar í fjölmiðlum að tillaga Arnar væri ótæk. Hagar hf. á og rekur Hagkaup, Útilíf, Aðföng, Ferskrar kjötvörur, bleika sparigrísinn Bónus og fleiri fyrirtæki.