fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Lífið eftir dauðann í Tsjernobyl

30 ár liðin frá alvarlegasta kjarnorkuslysi sögunnar – Fáir búa í annars yfirgefnum bæjum

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 1. maí 2016 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 26. apríl árið 1986 átti sér líklega stað versta kjarnorkuslys sögunnar. Slysið varð í kjarnorkuveri í Pripyat í Úkraínu, sem þá var hluti af Sovétríkjunum sálugu. Sprengingar urðu í einum ofni í Tsjernobyl-kjarnorkuverinu sem olli því að gríðarmikið magn geislavirkra efna slapp út í andrúmsloftið og dreifðist víða um vesturhluta þáverandi Sovétríkja og Evrópu. Allir íbúar í 30 kílómetra radíus frá verinu voru fluttir á brott á fyrstu dögunum eftir slysið – allt að 135 þúsund manns. Þegar frá leið voru fleiri fluttir á brott, af mun stærra svæði.

Tveir verkamenn létust við sprengingarnar en 28 slökkviliðs- og björgunarmenn létu lífið fyrstu þrjá mánuðina eftir að hafa unnið á vettvangi.

Síðan eru liðin 30 ár. Lífið í kring um Tsjernobyl – þar sem 12–15 þúsund manns bjuggu – er enn ekki samt. Enn þann dag í dag eru fáir íbúar búsettir í bæjunum í kring. Stærstur hluti landsvæðisins hefur með tímanum verið nýttur til ræktunar. Gróður- og dýraríkið dafnar ágætlega og nálægasti sveitabær er í 37 kílómetra fjarlægð frá kjarnorkuverinu, skammt utan svæðisins þar sem takmarkanir hafa verið á aðgengi. Á umræddu býli eru ríflega 260 hestar og einar 55 kýr, sem ræktaðar eru til sölu. Starfsmenn verndarsvæðisins, í 30 kílómetra radíus umhverfis kjarnorkuverið, segja að náið sé fylgst með geislun á svæðinu. Meðfylgjandi myndir tóku Sergey Dolzhenko og Tatyana Zenkovich fyrir myndveituna EPA.

Karlmaður gengur fram hjá skiltum með nöfnum þeirra bæjarbúa sem fluttir voru á brott eftir slysið. Myndin er tekin í garði til minningar um þá sem létust vegna slyssins.
Minnisvarðar Karlmaður gengur fram hjá skiltum með nöfnum þeirra bæjarbúa sem fluttir voru á brott eftir slysið. Myndin er tekin í garði til minningar um þá sem létust vegna slyssins.

Mynd: EPA

Engin börn hafa í þrjá áratugi notið ævintýranna sem þessi skemmtigarður í borginni Pripyat, nærri Tsjernobyl, hafði eitt sinn upp á að bjóða.
Lokað Engin börn hafa í þrjá áratugi notið ævintýranna sem þessi skemmtigarður í borginni Pripyat, nærri Tsjernobyl, hafði eitt sinn upp á að bjóða.

Mynd: EPA

Þessir skór hafa í 30 ár legið óhreyfðir í yfirgefnu þorpi, Orecichi. Íbúar fengu engan tíma til að pakka niður eða undirbúa brottförina.
Allir farnir Þessir skór hafa í 30 ár legið óhreyfðir í yfirgefnu þorpi, Orecichi. Íbúar fengu engan tíma til að pakka niður eða undirbúa brottförina.

Mynd: EPA

Hér má sjá hvernig tíminn hefur leikið húsnæði sem eitt sinn hýsti leikskóla í borginni Pripyat.
Engin börn Hér má sjá hvernig tíminn hefur leikið húsnæði sem eitt sinn hýsti leikskóla í borginni Pripyat.

Mynd: EPA

Lífríkið á svæðinu er smám saman að vakna til lífsins eftir hörmungarnar. Geislun er þó enn mikil.
Gamall bátur Lífríkið á svæðinu er smám saman að vakna til lífsins eftir hörmungarnar. Geislun er þó enn mikil.

Mynd: EPA

Hvítrússneskur vörður opnar hlið sem veitir aðgengi að lokaða svæðinu umhverfis kjarnorkuverið. Aðgengi er heft í 30 kílómetra radíus umhverfis verið.
Heft aðgengi Hvítrússneskur vörður opnar hlið sem veitir aðgengi að lokaða svæðinu umhverfis kjarnorkuverið. Aðgengi er heft í 30 kílómetra radíus umhverfis verið.

Mynd: EPA

Vinnumaður gefur hestum að éta innan verndarsvæðisins í Babchin. Landið sem lá á lausu eftir fólksflóttann hefur að mestu verið nýtt til ræktunar.
Hestunum gefið Vinnumaður gefur hestum að éta innan verndarsvæðisins í Babchin. Landið sem lá á lausu eftir fólksflóttann hefur að mestu verið nýtt til ræktunar.

Mynd: EPA

Karlmaður gengur fram hjá skiltum með nöfnum þeirra bæjarbúa sem fluttir voru á brott eftir slysið. Myndin er tekin í garði til minningar um þá sem létust vegna slyssins.
Minnisvarðar Karlmaður gengur fram hjá skiltum með nöfnum þeirra bæjarbúa sem fluttir voru á brott eftir slysið. Myndin er tekin í garði til minningar um þá sem létust vegna slyssins.

Mynd: EPA

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar