fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Fyrrverandi fangi í Norður-Kóreu: Erfiðir tímar framundan hjá Otto

Kang Chol-hwan var þræll í Norður-Kóreu í 10 ár – Bandaríkjamaðurinn Otto Warmbier var dæmdur fyrir skemmstu til 15 ára erfiðisvinnu

Einar Þór Sigurðsson
Föstudaginn 1. apríl 2016 23:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Var dæmdur til fimmtán ára erfiðisvinnu í Norður-Kóreu.
Otto Warmbier Var dæmdur til fimmtán ára erfiðisvinnu í Norður-Kóreu.

Kang Chol-hwan þekkir af eigin raun hvernig er að vera fangi í Norður-Kóreu. Á dögunum bárust fregnir af því að 21 árs gamall Bandaríkjamaður, Otto Warmbier, hefði verið dæmdur til fimmtán ára erfiðisvinnu í þessu lokaðasta ríki heims.

Kang var haldið föngnum í Yodok-fangabúðunum í Norður-Kóreu um tíu ára skeið, en hann er einn best þekkti flóttamaður Norður-Kóreu. Um reynslu hans var skrifuð bókin Aquariums of Pyongyang sem kom út árið 2005, en bókin hlaut einróma lof gagnrýnenda og varpaði ljósi á þá grimmd sem fangar eru beittir í Norður-Kóreu.

Kang sat fyrir svörum í fyrirspurnartíma á vefnum Reddit, en þar gafst notendum tækifæri á að spyrja Kang um allt milli himins og jarðar. Hann líkti Norður-Kóreu við Þýskaland nasismans og sagði að aðstæður í fangabúðum landsins væru skelfilegar. Kang, og fjölskylda hans, var handsamaður af yfirvöldum í Norður-Kóreu á níunda áratug liðinnar aldar, en afi hans var sakaður um landráð. Kang tókst að flýja til Kína árið 1992.

Í fyrirspurnartímanum lýsti hann því hvernig fangar væru vaktir klukkan fimm alla morgna og þeim þrælað út við vinnu til sólseturs. „Við vorum neyddir til að horfa á opinberar aftökur. Við vorum beittir skelfilegu ofbeldi – barðir og pyntaðir. Þetta er aðeins annað form af Auschwitz-fangabúðunum. Það er eins og þessar vinnubúðir séu afsprengi nasismans,“ sagði hann, en af svörum hans að dæma má Otto Warmbier vænta þess að erfiðir tímar bíði hans.

Þess má þó geta að mörg dæmi eru um að útlendingum, sem dæmdir hafa verið til erfiðisvinnu í Norður-Kóreu, sé sleppt úr haldi áður en fullnustu dómsins lýkur. Otto var handtekinn á leið sinni frá Norður-Kóreu í desember síðastliðnum, en í fórum hans fannst skilti sem hann hafði stolið á hóteli í höfuðborginni, Pyongyang.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“