Á meðal umsækjenda um stöðu skólameistara Borgarholttskóla er starfsmaður Menntamálaráðuneytisins


Mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að fela sjálfstæðri valnefnd að fjalla um og leggja mat á umsóknir um embætti skólameistara Borgarholtsskóla. Þetta er gert vegna umsóknar starfsmanns ráðuneytisins, Ársæls Guðmundssonar, fyrrverandi skólameistara Iðnskólans í Hafnarfirði, en hann er einn þeirra tíu sem sóttu um stöðuna. DV spurði á dögunum um ráðningarferlið en fékk hinn 10. febrúar svar á þá leið að verið væri að vinna að því að búa til ráðningarferli. Ársæll hefur verið verkefnaráðinn í ráðuneytinu í um tvö ár.
Í svari ritara ráðuneytisstjóra kemur fram að í valnefndinni muni Ágústa Hlín Gústafsdóttir gegna formennsku, en hún er sérfræðingur í mannauðsmálum en sæti eiga auk hennar Sóley Ragnarsdóttir lögfræðingur og Þorsteinn Þorsteinsson, fyrrverandi skólameistari. „Valnefndinni er ætlað að leggja mat á umsóknir og velja umsækjendur til frekara mats með prófum og viðtölum, undirbúa og leggja mat á umsækjendur með viðtölum og leita umsagna um umsækjendur eftir því sem þurfa þykir. Gert er ráð fyrir að valnefndin skili niðurstöðum sínum í formi minnisblaðs til mennta- og menningarmálaráðherra þar sem fram kemur niðurstaða nefndarinnar um mat á hæfi umsækjenda til að gegna embættinu. Gert er ráð fyrir að ráðherra skipi í embætti skólameistara Borgarholtsskóla frá og með 1. apríl nk.,“ segir í svarinu.
Í samtali DV við ritara ráðherra kom fram að venjulega séu valnefndir skipaðar blöndu af fólki úr ráðuneytinu og utan þess en að þessu sinni eigi enginn starfsmaður ráðuneytisins sæti.
Umsækjendur eru auk Ársæls; Anton Már Gylfason, Ari Halldórsson, Ásta Laufey Aðalsteinsdóttir, Bjargey Gígja Gísladóttir, Guðrún Ragnarsdóttir, Ingi Bogi Bogason, Jón Eggert Bragason, Magnús Ingólfsson og Markús G. Sveinbjarnarson. Skipað verður í stöðuna til fimm ára, frá 1. apríl næstkomandi.