fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Fimmtán ára ráðgáta virðist loksins vera leyst

Peggy Knobloch hvarf sporlaust árið 2001 – Alræmdur nýnasisti grunaður um ódæðið

Einar Þór Sigurðsson
Sunnudaginn 4. desember 2016 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hver urðu örlög hinnar níu ára gömlu Peggy Knobloch, sem hvarf sporlaust frá heimili sínu í Bæjaralandi? Þetta er spurning sem Þjóðverjar hafa spurt sig allt frá þeim örlagaríka degi í maí árið 2001.

Aðstandendur stúlkunnar, sem stundum var kölluð hin þýska Madeleine McCann, fengu ákveðin svör við spurningum sínum í sumar þegar líkamsleifar hennar fundust, 15 kílómetrum frá heimili hennar. Og í vikunni fengu aðstandendur enn frekari svör þegar DNA-rannsókn leiddi í ljós að alræmdur nýnasisti, Uwe Bönhardt, virðist hafa átt þátt í hvarfinu.

Dæmdur í lífstíðarfangelsi

Hvarfið á Peggy vakti gríðarlega athygli á sínum tíma en hún sást síðast skammt frá heimili sínu í Lichtenberg í Bæjaralandi þann 7. maí 2001. Hundruð lögreglumanna tóku þátt í leitinni á sínum tíma og þyrlur sveimuðu yfir nágrenninu svo vikum skipti. Allt kom fyrir ekki – ekki fannst Peggy.

Uwe Bönhardt, sem er lengst til hægri á myndinni, er grunaður um aðild að hvarfinu. Erfðaefni úr honum fundust á fötum Peggy. Fyrir miðri mynd er Beate Zschäpe og Uwe Mundlos er til vinstri.
Þremenningarnir Uwe Bönhardt, sem er lengst til hægri á myndinni, er grunaður um aðild að hvarfinu. Erfðaefni úr honum fundust á fötum Peggy. Fyrir miðri mynd er Beate Zschäpe og Uwe Mundlos er til vinstri.

Það var ekki fyrr en í júlí í sumar að einhver svör fengust um örlög hennar. Maður sem var að tína matsveppi gekk þá fram á líkamsleifar og leiddi DNA-rannsókn í ljós að þarna væri komin fram Peggy Knobloch. Rannsókn lögreglu varð til þess að andlega vanheill maður, Ulvi Kulac, var dæmdur fyrir aðild að hvarfinu árið 2004 og dæmdur í lífstíðarfangelsi. Tæpum tíu árum síðar, eða árið 2014, var hann látinn laus eftir að áfrýjunardómstóll komst að þeirri niðurstöðu að fangelsisdómurinn hefði verið byggður á veikum grunni.

Alræmd samtök

Eftir að líkamsleifarnar fundust í sumar fór rannsókn lögreglu á fullt aftur. Tekin voru DNA-sýni og þau send í rannsókn og þá komu tengslin við Uwe Bönhardt í ljós. Erfðaefnin fundust á fötum Peggy. Bönhardt var einn af liðsmönnum þýsku nýnasista- og hryðjuverkasamtakanna NSU (þ. Nationalsozialistischer Untergrund). Samtökin eru talin hafa staðið á bak við bankarán og morð á að minnsta kosti tíu manns árin 2002 til 2007; átta tyrkneskum innflytjendum, grískum ríkisborgara og þýskri lögreglukonu. Bönhardt og félagi hans úr samtökunum, Uwe Mundlos, frömdu sjálfsvíg árið 2011 eftir að hafa framið vopnað bankarán í borginni Eisenach.

Beate er sögð vera reiðubúin til að bera vitni gegn fyrrverandi elskhuga sínum, Uwe Bönhardt.
Fyrir dómi Beate er sögð vera reiðubúin til að bera vitni gegn fyrrverandi elskhuga sínum, Uwe Bönhardt.

Dauðalisti

NSU-samtökin komust einmitt í umræðuna í Þýskalandi í nóvember 2011 eftir að öflug sprenging varð í íbúðarhúsi í borginni Zwickau í austurhluta Þýskalands það ár. Nokkrum klukkustundum áður höfðu Bönhardt og Mundlos framið fyrrgreint rán, en þeir bjuggu í húsinu sem sprakk, ásamt Beate Zschäpe sem talin er að hafa sprengt húsið í loft upp. Beate, Bönhardt og Mundlos voru elskendur.
Í húsarústunum fundust meðal annars DVD-diskar þar sem ábyrgð var lýst á morðunum tíu og skotvopn sem notuð voru við morðin. Þá fannst dauðalisti með nöfnum 88 einstaklinga í Þýskalandi; stjórnmálamanna, þingmanna og fulltrúa tyrkneskra og íslamskra samtaka í Þýskalandi. Fjöldi nafna á listanum, 88, þykir þó ekki vera nein tilviljun. Talan er vinsæl meðal nýnasista en hún er eins konar stytting á orðtakinu „Heil Hitler“, en H er áttundi stafurinn í stafrófinu. Beate er nú fyrir dómi, ákærð fyrir aðild að morðunum árin 2002 til 2007.

Beate ber vitni

Þýskir fjölmiðlar greindu frá því í vikunni að Beate væri reiðubúin að bera vitni um ódæðisverk Bönhardts gegn Peggy á sínum tíma. Ekki liggur fyrir hvers vegna Bönhardt nam stúlkuna á brott og myrti eins og margt bendir til. Fer lögregla nú meðal annars yfir tölvur sem Bönhardt notaðist við til að kanna hvort eitthvað komi fram sem varpað gæti betra ljósi á örlög stúlkunnar. Mathias Grasel, verjandi Beate, sagði við þýska fjölmiðla að skjólstæðingur sinn væri reiðubúinn að svara spurningum um hvarf stúlkunnar. Vitnaleiðslur fara fram í næstu viku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar