fbpx
Fimmtudagur 09.október 2025
Fréttir

Oddný: Samfylkingin fyrir heilbrigðara samfélag

Oddný Harðardóttir formaður Samfylkingarinnar og oddviti í Suðurkjördæmi

Ritstjórn DV
Föstudaginn 28. október 2016 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við viljum skapa samfélag þar við njótum öll sömu tækifæra til að mennta okkur og koma þaki yfir höfuðið. Réttlátt samfélag þar sem auðlindir gagnast öllum, veikir fá ókeypis þjónustu og aldraðir lifa góðu lífi. Samfélag þar sem fólk hjálpast að og stendur saman.

Samfylkingin ætlar að fjárfesta í heilbrigðisþjónustunni, stíga örugg skref í átt að gjaldfrjálsri heilbrigðisþjónustu og sækja arðinn af auðlindunum með útboði á aflaheimildum. Við ætlum að setja framsækna atvinnustefnu og hætta að gefa ferðamönnum afslátt af neyslusköttum. Við ætlum að sýna öldruðum sóma og hækka lífeyri í 300 þúsund krónur á mánuði að lágmarki. Bæta kjör öryrkja, tækifæri þeirra og þjónustu. Við ætlum fjölga leiguíbúðum og sýna samstöðu með ungu fólki við að koma sér þaki yfir höfuðið og með barnafjölskyldum. Við vitum hvernig skal fjármagna öll þessi verkefni og við höfum efni á þeim.

Það er mikilvægt að kjósa Samfylkinguna, alvöru jafnaðarmannaflokk og kjölfestu sem hefur reynslu, þekkingu og þor til að takast á við framtíðina. Afl sem tekur jafnrétti kynjanna alvarlega og sýnir það í verki. Fólk sem vinnur gegn spillingu og frændhygli. Flokk sem hefur jöfnuð og sanngirni að leiðarljósi í öllu sínu starfi.

Við erum með hjartað á réttum stað. Kjósum heilbrigðara samfélag. Kjósum Samfylkinguna.“

Íslendingar ganga að kjörborðinu á morgun og kjósa fulltrúa sína til Alþingis. Úr nægu er að velja fyrir kjósendur en níu stjórnmálahreyfingar bjóða fram í öllum kjördæmum landsins. Auk þess bjóða þrjár aðrar hreyfingar fram í færri kjördæmum.

DV leitaði til allra framboðanna og bauð þeim að reyna eftir megni að sannfæra kjósendur um að veita þeim atkvæði sín. Þetta eru þeirra áherslur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

„Loksins er verið að segja upphátt það sem margir hafa vitað lengi“

„Loksins er verið að segja upphátt það sem margir hafa vitað lengi“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Félagið Ísland-Palestína boðar til mótmæla vegna Möggu Stínu

Félagið Ísland-Palestína boðar til mótmæla vegna Möggu Stínu
Fréttir
Í gær

Stjórnarandstaðan gríðarlega óvinsæl hjá flestum hópum – Ríkisstjórnin nýtur aukinna vinsælda

Stjórnarandstaðan gríðarlega óvinsæl hjá flestum hópum – Ríkisstjórnin nýtur aukinna vinsælda
Fréttir
Í gær

Aðalheiður kærði ofbeldi leigubílstjóra hjá Hreyfli – Fyrirtækið aðhafðist ekkert í 834 daga og þolendum fjölgaði

Aðalheiður kærði ofbeldi leigubílstjóra hjá Hreyfli – Fyrirtækið aðhafðist ekkert í 834 daga og þolendum fjölgaði
Fréttir
Í gær

Læknir sleppur við áminningu – Kona átti að fá lyf sem hún er með ofnæmi fyrir

Læknir sleppur við áminningu – Kona átti að fá lyf sem hún er með ofnæmi fyrir
Fréttir
Í gær

Þýskur bæjarstjóri þungt haldinn eftir hnífaárás – Leitað að „nokkrum“ mönnum sem grunaðir eru um verknaðinn

Þýskur bæjarstjóri þungt haldinn eftir hnífaárás – Leitað að „nokkrum“ mönnum sem grunaðir eru um verknaðinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir ómaklegt að þrýsta á Samfylkinguna í máli rússnesku tvíburanna

Segir ómaklegt að þrýsta á Samfylkinguna í máli rússnesku tvíburanna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Spáir rekstrarerfiðleikum fyrir easyJet og Wizz Air eftir fall Play og Braathens – Fækkar valkostum Íslendinga?

Spáir rekstrarerfiðleikum fyrir easyJet og Wizz Air eftir fall Play og Braathens – Fækkar valkostum Íslendinga?