

Þó svo að hvasst hafi verið fyrr í dag er samt mesti stormurinn ókominn, á undan sjálfum kuldaskilum óveðurslægðarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Samvkæmt veðurfræðingi mun hvessa upp úr klukkan 18 með S- og SSA-átt. Nær vindur hámarki vestanlands seint í kvöld og snemma í nótt. 23-28 m/s í meðalvindi á Vesturlandi og í nótt einnig norðanlands. Mjög byljótt verður við þessar aðstæður og hviður allt að 35-45 m/s svo sem á Suðurnesjum, undir Hafnarfjalli og á norðanverðu Snæfellsnesi. Eins á Vestfjörðum til dæmis í Arnardal á milli Síðavíkur og Ísafjarðar (frá kl. 22) og í nótt í vestanverðum Skagafirði, Fljótum og á Öxnadalsheiði.
Þá er bent á að varasamar aðstæður verða t.d. á Reykjanesbrautinni þegar vatn safnast í hjólför samfara hvassviðri þvert á veginn.
Vegna ræsagerðar verður vegur númer 939, Axarvegur, lokaður allri umferð til kl. 19 í kvöld, 19. október.
Þá er vakin athygli á að umferðarþjónusta Vegagerðarinnar sem veitir upplýsingar um færð og aðstæður á vegum í síma 1777 er komin á vetrartíma. Þar er nú svarað frá klukkan hálf-sjö á morgnana til klukkan tíu á kvöldin, alla daga vikunnar.
Þá kemur einnig fram að í Í dag er unnið að viðgerðum á Reykjanesbraut, á kaflanum frá Smáralind að Kaplakrika. Þrengt er að umferð en hún ætti þó að ganga eðlilega fyrir sig.