

Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra skipaði aðstoðarmann sinn, Hrannar Pétursson, í sjórn Íslandsstofu. Frá þessu greinir Fréttablaðið. Haft er eftir Lilju að Hrannar hafi verið fenginn í ráðuneytið á faglegum forsendum en ekki pólitískum. Hann sé ekki flokksbundinn Framsóknarmaður og hafi engum skyldum að gegna gagnvart flokknum. Hrannar búi yfir gífurlegri reynslu á þessu sviði.
Hrannar hefur unnið hjá Vodafone, Ísal og RÚV undanfarin ár. Hann var í forsetaframboði þar til Ólafur Ragnar Grímsson gaf kost á sér aftur, seint í apríl.
Ný stjórn Íslandsstofu situr næstu þrjú árin. Sjö manns eru í stjórn.