Ekki þörf á að sækja þau fyrr en venjulega


Slökkviliðið hefur í samráði við lögreglu og Veðurstofu Íslands, mælst til þess að foreldrar sæki börn sín í lok skóla eða frístundastarfs. Börn yngri en 12 ára ættu því ekki að ganga heim til sín.
Slæmt veður er nú á sunnan- og vestanverðu landinu. Fram kemur í tilkynningu að börn séu óhult í skóla og frístundastarfi þar til þau verði sótt. Ekki þarf því að sækja þau fyrr en venjulega.