fbpx
Laugardagur 11.maí 2024
Fókus

Stefán Örn heillast ekki af nýjum bílategundum: „Mér finnst ekki gaman að aka um á nákvæmlega eins bíl og Siggi í næstu götu“

Tómas Valgeirsson
Föstudaginn 8. júní 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefán Örn Stefánsson, meistari í bifreiðasmíði, er stoltur eigandi einu DeLorean-bifreiðarinnar sem skráð er á Íslandi. Bíllinn er sportbifreið úr ryðfríu stáli og trefjaplasti með vængjahurðum.

Tegundin er mörgum kunnug og sást sams konar kerra í Back to the Future-myndunum og gegndi bíllinn þá hlutverki tímavélar sem var til (flug)taks fyrir Marty McFly til í þríleiknum fræga.

Aðeins voru tæplega 9.000 eintök af DeLorean framleidd á árunum 1981 og 1982 og er talið að 6.500 eintök séu enn til. Virði þessa bíls er um 30 þúsund bandaríkjadollarar í dag eða um fjórar milljónir króna.

Stefán tekur stíl Marty McFly alla leið.
Back to the Future kom út árið 1985 og hefur notið ómældra vinsælda síðan.

Fornbílaflotinn sem Stefán safnar til varðveislu er í geymslu í Bolungarvík, meðan eigandinn vinnur við smíðar í Grindavík.

Bílarnir eru í kringum 15 talsins en þó segir Stefán að ekki fari á milli mála hvaða bifreið í safninu ber af sem stærsta krúnudjásnið og er það að sjálfsögðu tvennra dyra silfurstálið frá Svíþjóð sem Marty McFly notaði til að ferðast milli ára.

„Back to the Future er náttúrlega bara besti þríleikur sem hefur verið gefinn út. Ég var bara fimm ára þegar fyrsta myndin kom út en þær höfðu allar mikil áhrif á mig og ég fæ enn gæsahúð þegar ég horfi á þær í dag.“

Stefán safnaði úrklippum af DeLorean-bílum úr erlendum bílablöðum sem hann rammaði inn og hengdi upp á vegg. „Aldrei átti ég svo sem von á því að sá draumur myndi rætast að ég eignaðist svona bíl einn daginn.“

Kostar um fjórar milljónir í dag

Sýningarbíllinn í safninu

Stefán eignaðist De Lorean-bifreiðina sumarið 2005. Bíllinn var hvergi auglýstur til sölu en Stefán hafði samband við eigandann og falaðist eftir honum.

„Ég keypti hann af Sindrastáli, sem var umboðsaðili þessa sænska stáls hér á Íslandi,“ segir Stefán:

„Þeir fluttu bílinn inn árið 1998 og sýndu hann á bílasýningu í Laugardalshöllinni. Ég sá hann þar fyrst og heillaðist alveg.“

Bætir hann við að þetta sé eini bíll sinnar tegundar sem er skráður á Íslandi og að einu sinni áður hafi verið fluttur inn sambærileg tegund til þess að taka þátt í sýningu tengdum Sænskum dögum, en það var vegna þess að ryðfría stálið sem notað er í yfirbygginguna er framleitt í Svíþjóð.

Eintakið af DeLorean-bílnum sem er í safni Stefáns er gamall sýningarbíll, „allur original og meira að segja á upphaflegu dekkjunum. Hann er ekki ekinn nema um 8.600 mílur.“

Áður en bíllinn sló í gegn í Back to the Future þótti útlit hans afar umdeilt, en með tilkomu myndarinnar komst útlitið á bílnum í mikla tísku.
Stefán segir að útlit bíla sé vissulega smekksatriði, en í hans tilfelli hefur hann lítinn sem engan áhuga að eignast nýjan eða nýlegan bíl.

Segir hann það ekki bara vera vegna útlitsins, heldur notar hann klassíska frasann: „They don’t make them like they used to.“

Hverfur ekki í fjöldann

„Bílar eru mitt aðaláhugamál, að gefa gömlum hlutum líf, nýtt hlutverk og þess háttar,“ segir Stefán sem segist hafa reglulega hangið með viðgerðarmönnum frá þriggja ára aldri og segir bíladelluna hafa umhugsunarlaust kviknað þar:

„Í götunni sem ég ólst upp í voru þrír „skúrakarlar“ sem voru alltaf að brasa eitthvað í skúrnum við götuna, gerandi við bíla, þá ýmist beyglur, ryðbæta og fleira í þeim dúr.“

Hér sést Þórunn Hafdís, dóttir Stefáns, við silfruðu glæsikerruna.

Yngsti bíllinn í safni Stefáns er 20 ára gamall.

„Mér finnst ekki gaman að aka um á nákvæmlega eins bíl og Siggi í næstu götu á,“ segir Stefán:

„Ég myndi segja að ég sé einstaklingur sem vill ekki hverfa inn í fjöldann,“ bætir hann við. „Ég tek ekki þátt í lífsgæðakapphlaupi eða neinu slíku og kýs að hugsa út fyrir boxið.“

Elsti bíllinn í safni Stefáns er 66 ára gamall. Það er fernra dyra Chevrolet frá 1952. Margir bílanna eru óuppgerðir og segir Stefán að hann safni að sér bílum til að varðveita þá. Hann hvorki segir né lofar að hann muni einhvern tíma gera þá alla upp:

„Mig langar að gera það, en maður þarf að hafa tíma til þess. Vonandi fæ ég núna löngun til að dútla aftur við bíla á kvöldin. En á meðan ég bíð eftir tíma, þá bíða bílarnir í geymslunni ásamt varahlutum sem ég hef líka sankað að mér.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Hver er dularfulla konan sem gerði allt vitlaust á Met Gala?

Hver er dularfulla konan sem gerði allt vitlaust á Met Gala?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Laufey vaknaði með slæman hausverk – Lá nokkrum tímum síðar á milli heims og helju á sjúkrahúsi

Laufey vaknaði með slæman hausverk – Lá nokkrum tímum síðar á milli heims og helju á sjúkrahúsi
Fókus
Fyrir 4 dögum

Lofar þeim sem styrkja hana kampavínsboði á Bessastöðum

Lofar þeim sem styrkja hana kampavínsboði á Bessastöðum
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Ég er mjög meðvituð um að ég á bara þetta eina líf sem Katrín Myrra“

„Ég er mjög meðvituð um að ég á bara þetta eina líf sem Katrín Myrra“