fbpx
Miðvikudagur 08.maí 2024
Fókus

„Hún er ekki bara stjúpmóðir. Hún er sammóðir“

Flókin fjölskyldumynstur á Íslandi – Vinna vel saman með hagsmuni barnanna að leiðarljósi

Steingerður Sonja Þórisdóttir
Laugardaginn 10. mars 2018 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenskar fjölskyldur geta verið flóknar. Á heimsvísu erum við með hæsta hlutfall barna sem fæðast utan hjónabands en hér er að sama skapi almennt jákvæðara viðhorf til einstæðra foreldra og hjónaskilnaða. Ein afleiðing þessa er fjöldi samsettra fjölskyldna, en lengi hefur sú hugmynd verið við lýði að afbrýðisemi, samskiptaleysi og almenn vandræði fylgi óhjákvæmilega þannig fjölskyldum. En það er svo sannarlega ekki alltaf þannig.

Vinna vel saman

Jórunn Steinsson er í sambandi við Böðvar Rafn Reynisson en hann átti fyrir dótturina Emilíu með Önnu Dögg Emilsdóttur og soninn Eyþór með Elísabetu Einarsdóttur. Þau eru skemmtilegt dæmi um það þegar samsett fjölskylda vinnur vel saman með það allra mikilvægasta að leiðarljósi, velfarnað og hamingju barnanna. Í dag eru þær allar þrjár góðar vinkonur.

„Ég var bara 21 árs gömul og vissi í raun ekkert hvað ég var að fara út í. Það sem bjargaði mér alveg til að byrja með var Anna Dögg og að sjálfsögðu krakkarnir og Böddi. Þau tóku mér strax eins og einni af fjölskyldunni og það sama má segja um foreldra Önnu Daggar. Ég var fljót að aðlagast miðað við aðstæður, nýskriðin yfir tvítugt. Aðeins síðar kynntumst við Lísa, mamma Eyþórs, og við tölum saman nánast á hverjum degi, um börnin eða um eitthvað allt annað,“ segir Jórunn.

Vissi að henni væri treystandi

Jórunn kynntist Bödda fyrir átta árum en þá var Eyþór að verða í tveggja ára og Emilía var fjögurra ára. Jórunn var ung en tók hugmyndinni um móðurhlutverkið opnum örmum og var staðráðin í að gera sitt besta.

„Ég man nákvæmlega hvenær ég vissi að Jórunni var alvara með nýja móðurhlutverkið. Það var þegar ég var að vafra á Facebook og sá hana bjóða í falleg barnaföt á sölusíðu. Þá vissi ég að þessari ungu konu var treystandi fyrir barninu mínu og hún ætlaði sér greinilega að hugsa vel um börnin,“ rifjar Anna upp og Jórunni eru augljóslega skemmt yfir þessari minningu.

Í heildina eiga þær þrjár, eða „sammæðurnar“ eins þær kalla sig, alls átta börn. Sameiginlegt forræði er í tilvikum Eyþórs og Emilíu. Emilía býr núna hjá Jórunni og Bödda því Anna Dögg býr í Noregi. Hún fer þó reglulega út til mömmu sinnar og Anna kemur líka oft til landsins. Eyþór er nokkuð jafnt hjá Jórunni og Bödda og svo Lísu.

„Hún elur Eyþór upp jafn mikið og ég og við ræðum reglulega saman um uppeldið. Dóttir mín, systir Eyþórs, er þriggja ára og er komin í sína aðra lyfjameðferð. Alltaf hefur Jórunn verið til staðar og ég get leitað til hennar eftir ráðum. Þetta gengur allt eins og í sögu og við erum þrjár frábærar saman,“ segir Lísa.

Áður en Jórunn kom inn í líf Bödda kynntust Lísa og Anna Dögg, Emilía var tveggja ára gömul þegar Eyþór fæddist.

„Ég dýrkaði Önnu Dögg strax. Hún er ofboðslega hress og glaðlynd svo erfitt er að líka ekki við þessa hjartahlýju konu. Við erum þrjár að ala upp þessi börn ásamt okkur Bödda og okkar mökum. Jórunn kom inn í líf Eyþórs þegar hann var bara eins árs gamall. Fyrst var ég efins og sá bara eitthvert ofurmódel og hugsaði að hún myndi gefast upp strax. En hún fór ekki fet, hún er ekki bara stjúpmóðir, hún er sammóðir,“ segir Lísa.

Stjúp-orðið stingur

Sammæður er orð sem þær hafa tileinkað sér og nota mikið. Orðið virðist passa vel við samheldni og afstöðu þeirra allra.

„Já, þær byrjuðu á því einhvern tímann. Eða Lísa held ég, ég dýrkaði það strax. Stjúp-orðið hefur alltaf stungið mig smá. Sennilega „vonda stjúpan“-tengingin, finnst það vera einhvers konar aftenging við barnið,“ segir Jórunn.

Eins og áður kom fram áttu Jórunn og Anna Dögg í samskiptum frá upphafi og hún tók henni strax sem sammóður, lét henni líða eins og hún gæti þetta og myndi ekki sjá eftir þessu stóra skrefi. Í raun umbylti þetta algjörlega lífsstefnu Jórunnar sem var ekki viss á þeim tíma hvort hana langaði yfirleitt að eignast börn.

„Það er langt síðan farið var að pressa á mig og Bödda að bæta við í barnaskarann. Fólk gengur svo langt að segja að ég sé bara hreint ekkert móðir fyrr en ég hef komið einu stykki út úr sjálfri mér persónulega og það var sagt við mig síðast bara í janúar,“ segir Jórunn. „Sumir virðast telja sig þurfa að sannfæra mig um það að ást manns á manns „eigin“ barni sé alltaf meiri, en ég er hreinlega ósammála. Upphaflega planið mitt var aldrei að eignast börn, en lífið valdi annað og ég hef ekki fyrir mitt litla líf séð eftir því eða hugsað þetta öðruvísi,“ bætir hún svo við.

Jórunn nefnir að Böddi eigi líka mikinn þátt í hve tengslin eru góð.

„Já, maður reynir alveg að treysta barnsföður sínum að velja vel. Og það eina sem ég vissi um Jórunni á þessum tímapunkti var að mér fannst hún svakalega sæt!“ segir Anna Dögg og hlær. „En svo kom traustið, síðan þá hef ég sagt Bödda að ef hann heldur ekki vel í hana þessa sé mér að mæta,“ bætir hún við, enn þá kímin.

Hvað með allar ömmurnar og afana?

„Öll tuttugu?“ hlær Jórunn. „Það taka allir hlutverk sitt alvarlega. Mamma mín blómstrar alveg hreint. Hún skammar mig þegar hún fær ekki allar upplýsingar um öll börnin og tækifæri til að taka þátt í öllu, voða sætt,“ segir Jórunn.

„Uppeldisaðferðir eru ólíkar og virðing fyrir öllum fjölskyldueiningum er mikilvæg. Þannig forðumst við árekstra best,“ bætir Anna við að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Einar Ágúst þurfti að endurskoða líf sitt eftir að hafa greinst með alvarleg veikindi í fyrra

Einar Ágúst þurfti að endurskoða líf sitt eftir að hafa greinst með alvarleg veikindi í fyrra
Fókus
Í gær

„Ég hugsaði um að draga mig út þegar stríðið á Gaza braust út en á sama tíma vildi ég taka pláss og nota röddina mína“

„Ég hugsaði um að draga mig út þegar stríðið á Gaza braust út en á sama tíma vildi ég taka pláss og nota röddina mína“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sonur Birgittu Lífar og Enoks kominn með nafn

Sonur Birgittu Lífar og Enoks kominn með nafn
Fókus
Fyrir 2 dögum

TikTok-stjarnan lést á afmælisdegi kærastans

TikTok-stjarnan lést á afmælisdegi kærastans
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sjónvarpssería um ævintýralegan feril Jósafats Arngrímssonar

Sjónvarpssería um ævintýralegan feril Jósafats Arngrímssonar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Katrín og Vilhjálmur að „ganga í gegnum helvíti“

Katrín og Vilhjálmur að „ganga í gegnum helvíti“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Britney rýfur þögnina eftir meint hörkurifrildi hennar og kærastans – „Ég veit að mamma mín tengist þessu!“

Britney rýfur þögnina eftir meint hörkurifrildi hennar og kærastans – „Ég veit að mamma mín tengist þessu!“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Háklassa vændiskona fékk 650 þúsund krónur fyrir fjögurra tíma vinnu – „Ég myndi aldrei mæla með þessu starfi fyrir einhvern“

Háklassa vændiskona fékk 650 þúsund krónur fyrir fjögurra tíma vinnu – „Ég myndi aldrei mæla með þessu starfi fyrir einhvern“