Mynd
Er VG að snúast í afstöðunni til ESB? - Formaðurinn segir já 29. ágúst en áhrifamiklir flokksmenn ósammála
Einhverjar hræringar og breytingar virðast vera að eiga sér stað innan Vinstri hreyfingarinnar-Græns framboðs þegar kemur að afstöðu flokksins til inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Samkvæmt könnunum ætlar mikill meirihluti stuðningsmanna flokksins að segja já við því, í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst, að halda áfram aðildarviðræðum Íslands og ESB.