Læknar sakaðir um að falsa sjúkraskýrslu – Til rannsóknar hjá landlækni í þrjú ár
FréttirUmboðsmaður alþingis hefur lokið máli sem varðar margþætta kvörtun ónefnds einstaklings. Í bréfi umboðsmanns til viðkomandi er meðal annars vísað til kvörtunar vegna meintra falsana tveggja lækna á upplýsingum í sjúkraskrá kvartandans. Fram kemur einnig að kvörtun í garð læknanna sem var lögð fram hjá embætti landlæknis í nóvember 2022 hafi verið til skoðunar síðan, Lesa meira
Þurfti að bíða í nærri fjögur ár eftir svari frá ráðuneytinu
FréttirÓnefndur maður sendi erindi til dómsmálaráðuneytisins í janúar 2022 sem væri líklega ekki í frásögur færandi nema hvað að hann fékk ekki svar fyrr en nú í desember 2025. Næstum fjórum árum síðar. Hreyfing virðist ekki hafa komið á málið fyrr en maðurinn lagði fram kvörtun til umboðsmanns Alþingis. Maðurinn lagði fram kvörtunina í júlí Lesa meira
Fóru ekki að lögum í máli hælisleitanda – Talsmaður sinnti ekki kærubeiðni
FréttirUmboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærunefnd útlendingamála hafi ekki farið að lögum við frávísun á kæru hælisleitanda frá Venesúela, sem er kona. Konunni hafði verið synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísað úr landi. Hún vildi nýta sér rétt sinn til að kæra þá niðurstöðu til kærunefndar útlendingamála. Talsmaður hennar sinnti Lesa meira
Sakar Kirkjugarða Reykjavíkur um að skaða rekstur blómabúða
FréttirUmboðsmaður Alþingis hefur lokið meðferð sinni á kvörtun ónefnds aðila vegna sölu Kirkjugarða Reykjavíkur á aðventuskreytingum og leiðisgreinum fyrir jólin sem viðkomandi segir valda rekstraraðilum blómabúða tjóni. Kvörtunin barst um miðjan nóvember síðastliðinn. Segir umboðsmaður að þótt Kirkjugarðar Reykjavíkur séu sjálfseignarstofnun falli þeir undir reglur um opinbera stjórnsýslu þar sem mælt sé fyrir um starfsemina Lesa meira
Kúbverji fær ekki vegabréfsáritun til Íslands – Sagt að kvarta við Svía
FréttirTveir einstaklingar, annar þeirra kona búsett á Kúbu, lögðu fram kvörtun til umboðsmanns Alþingis þar sem konunni var neitað um vegabréfsáritun til Íslands. Það var sænska sendiráðið á Kúbu sem neitaði konunni um áritunina en samkvæmt samningi sjá Svíar um fyrirsvar vegna vegabréfsáritana til Íslands á Kúbu. Umboðsmaður tók undir með íslenskum stjórnvöldum um að Lesa meira
Hefur beðið í tvö ár eftir svari við umsókn um ríkisborgararétt
FréttirUmboðsmaður Alþingis hefur lokið athugun sinni á kvörtun ónefnds einstaklings yfir því að hafa ekki fengið svör frá Útlendingastofnun við umsókn um íslenskan ríkisborgararétt sem lögð var fram í september 2023. Segir í bréfi umboðsmanns til viðkomandi að þar sem tafirnar séu af orsökum sem séu ekki bundnar eingöngu við hans mál verði ekki farið Lesa meira
Telur að ríkið hafi brotið á öryrkja sem fékk bætur í Noregi
FréttirUmboðsmaður Alþingis hefur sent frá sér álit í máli konu sem er öryrki. Tryggingastofnun hafði skert örorkubætur hennar hér á landi vegna örorkubóta sem hún hafði fengið í Noregi og úrskurðarnefnd velferðarmála staðfesti þá niðurstöðu. Niðurstaða umboðsmanns er sú að úrskurður nefndarinnar hafi ekki verið í samræmi við lög. Konan fékk greiðslur frá norsku vinnu- Lesa meira
Lætur embætti ríkislögreglustjóra ekki í friði
FréttirUmboðsmaður Alþingis hefur tekið undir þá niðurstöðu embættis ríkislögreglustjóra að blokka netföng manns og hætta að svara honum en maðurinn hefur á undanförnum árum sent embættinu fjölda tölvupósta og hljóðskilaboða auk þess að hringja margsinnis í embættið. Vísaði embættið til þess að í fæstum tilfellum hefðu skilaboð, bréf og símtöl frá manninum haft nokkuð með Lesa meira
Segir tvö ráðuneyti verða að leysa 23 ára gamla deilu sín á milli – „Ráðherra skuli leggja sig fram um að eiga gott samstarf við samráðherra“
FréttirUmboðsmaður Alþingis hefur sent frá sér álit vegna þeirrar framkvæmdar fangelsisyfivalda að undanskilja þóknun fanga fyrir vinnu í fangelsi staðgreiðslu skatta og greiðslu annarra launatengdra gjalda. Er það niðurstaða umboðsmanns að þetta sé ekki í samræmi við skattalög. Athygli vekur að í álitinu átelur umboðsmaður stjórnvöld, sérstaklega fjármálaráðuneytið og dómsmálaráðuneytið um að koma sér ekki Lesa meira
Skúli lætur ráðuneyti Lilju heyra það – Brjóti lög með seinagangi og svari honum seint og illa
FréttirÁ vef umboðsmanns Alþingis, Skúla Magnússonar, hefur verið birt tilkynning vegna tveggja mála sem snúa að menningar- og viðskiptaráðuneytinu en ráðherra þess er Lilja Dögg Alfreðsdóttir. Málunum hafði umboðsmaður lokið á síðasta ári en virðist hafa snúið sér aftur að þeim þar sem lítið virðist hafa þokast í þeim. Snúa þau einkum að seinagangi ráðuneytisins Lesa meira
