Slysið við Núpsvötn: Barn lést og tveir aðrir – Hinir látnu breskir ferðamenn
FréttirÞrír létust eftir alvarlegt umferðarslys á Suðurlandsvegi við Núpsvötn. Í fyrstu tilkynningu frá lögreglu var greint frá því að fjórir hefðu látist. Hið rétta er að þrír eru látnir, og leiðréttist það hér með. Eitt barn er meðal látinna, og hafa hinir fjórir slösuðu verið fluttir á sjúkrahús í Reykjavík en þeir voru allir með meðvitund Lesa meira
Fjórir látnir og þrír alvarlega slasaðir eftir alvarlegt slys á Suðurlandsvegi
FréttirFjórir eru látnir og þrír alvarlega slasaðir eftir alvarlegt umferðaslys á Suðurlandsvegi. Sjö manns voru í bifreið sem fór fram af brúnni við Núpsvötn. Bifreiðin fór í gegnum vegrið og féll niður á áreyrirnar fyrir neðan. Ekki er vitað um nöfn þeirra látnu að svo stöddu. Fjórir fullorðnir og þrjú börn voru í bílnum. Lesa meira
Suðurlandsvegur lokaður vegna alvarlegs slyss
FréttirSlys hefur orðið á Suðurlandsvegi við brúnna yfir Núpsá, austan við Kirkjubæjarklaustur. Af þeim sökum hefur Suðurlandsvegi verið lokað um óákveðin tíma. Viðbragðsaðilar eru við vinnu á vettvangi en ekki er vitað um möguleg slys á fólki að svo búnu.