Wagnerliðar murkaðir niður og Prigozhin fallinn í ónáð í Kreml
FréttirÍ St Pétursborg eru glænýjar höfuðstöðvar málaliðafyrirtækisins Wagner, sem oft er kallað Wagner-group. En um 1.400 km í suðaustur frá höfuðstöðvunum er litlum glæsileika fyrir að fara hjá málaliðum á vegum fyrirtæksins sem berjast þar við úkraínskar hersveitir. „Samkvæmt gögnum okkar þá var búið að fá 42.000-43.000 fanga til liðs við fyrirtækið í lok desember. Nú er talan líklega komin yfir 50.000,“ sagði Lesa meira
Sérfræðingur er hissa – Var Pútín komið á óvart?
FréttirRússar gátu líklega séð með löngum fyrirvara að þetta var að fara að gerast en samt er eins og þeir viti ekki hvað þeir eiga að halda um þetta eða gera. Það er eins og Pútín og hans fólk sé hissa, að þeim hafi verið komið á óvart. Þetta er að minnsta kosti ekki ólíklegt að mati Lesa meira
Mörg NATO-ríki eru opin fyrir hugmyndinni – „Þetta gæti skipt sköpum“
FréttirFyrr í vikunni tóku Þjóðverjar og Bandaríkjamenn loks skrefið til fulls og ákváðu að senda úkraínska hernum Leopard og Abrams skriðdreka. Að auki hafa á annan tug þjóða tilkynnt að þær muni eða séu að íhuga að senda Úkraínumönnum skriðdreka. Nú er næsta umræða um stuðning við Úkraínu kominn í fullan gang, það er umræðan Lesa meira
Rúmlega 100 skriðdrekar á leið til Úkraínu en það er þörf fyrir 300
FréttirEftir tilkynningar bandarískra og þýskra stjórnvalda í gær um að löndin ætli að láta úkraínska hernum fullkomna skriðdreka í té þá liggur fyrir að rúmlega 100 skriðdrekar verða sendir til Úkraínu frá Vesturlöndum á næstu mánuðum. En hvað geta þessir skriðdrekar? Þessu var svarað í umfjöllun Jótlandspóstsins. Þar kemur fram að nú sé búið að Lesa meira
Nýjar upplýsingar um dauða rússnesks olígarka – „Brunnið lík skýrir ekki frá leyndarmálum“
FréttirÞað vakti heimsathygli þegar rússneski milljarðamæringurinn og olígarkinn Pavel Antov lést óvænt um jólin. Hann var þá í fríi á Indlandi. Hann datt út af svölum á aðfangadagskvöld, aðeins tveimur dögum eftir að ferðafélagi hans og vinur, Vladimir Bidenov, fannst látinn á hótelherbergi þeirra. Það þótti grunsamlegt að mennirnir létust með svo skömmu millibili og ekki dró það úr grunsemdum Lesa meira
Vestrænir skriðdrekar auka á ótta Rússa við að bíða sögulegan ósigur
FréttirRússar hafa brugðist ókvæða við ákvörðun Bandaríkjanna, Þýskalands, Bretland, Póllands og fleiri ríkja um að senda skriðdreka til úkraínska hersins. Anatoly Antonov, sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum, sagði á Telegram að þetta sé „enn ein augljós ögrunin“. Hann sagði „augljóst að Washington reyni vísvitandi að stuðla að hernaðarlegum ósigri Rússlands“. Flemming Splidsboel Hansen, sérfræðingur hjá Dansk Institute for Internationale Studier, sagði í samtali við TV2 að það sé vert að Lesa meira
Skriðdrekar eru afgerandi fyrir sókn Úkraínumanna
FréttirSamkvæmt fréttum erlendra fjölmiðla og fréttaveita þá eru bæði Þýskaland og Bandaríkin reiðubúin til að láta Úkraínumönnum skriðdreka í té. Þjóðverjar eru sagðir ætla að senda Leopard skriðdreka og Bandaríkin Abrams M1 skriðdreka. Þjóðverjar eru sagðir munu tilkynna þetta formlega á þýska þinginu klukkan 12 í dag að íslenskum tíma. Der Spiegel, Bloomberg, AP og fleiri fréttaveitur skýra frá þessu. Segja þær Lesa meira
Segir Vesturlöndum að undirbúa sig undir stigmögnun frá Pútín – Gæti gripið til kjarnorkuvopna
FréttirÁkvörðun Þjóðverja um að senda Leopard 2 skriðdreka til Úkraínu og heimila öðrum ríkjum að gera hið sama getur haft mikil áhrif á gang stríðsins. Bretar hafa einnig ákveðið að senda Challenger skriðdreka til Úkraínu og Bandaríkjamenn ætla að senda Abrams M1 skriðdreka. Jacob Kaarsbo, sérfræðingur í rússneskum málefnum hjá dönsku hugveitunni Tænketanken Europa, sagði í samtali við TV2 að ákvörðun Þjóðverja geti haft mikil áhrif á Lesa meira
Verður ný stórsókn síðasta tækifæri Rússa?
FréttirÍ Úkraínu og á Vesturlöndum er talið að Rússar séu með stórsókn í bígerð í Úkraínu og að ekki sé langt í að hún hefjist. Þegar veturinn brast á breyttist gangur stríðsins og það fraus eiginlega fast á margan hátt og herir stríðsaðilanna gátu ekki lengur sótt fram. Við tók gamaldags skotgrafahernaður, til dæmis í Bakhmut þar Lesa meira
Fyrrum toppdiplómat Pútíns varar Vesturlönd við úr útlegðinni – Búið ykkur undir hernaðarátök
FréttirBoris Bondarev var áður einn af helstu rússnesku diplómötunum. En ólíkt þeim flestum þá lét hann óánægju sína í ljós þegar Vladímír Pútín fyrirskipaði innrás í Úkraínu. Bondarev hætti og sótti um hæli í Sviss. Þar býr hann nú á leynilegum stað en það kemur ekki í veg fyrir að hann tjái sig um stríðið. TV2 segir að hann telji sjálfan sig ekki Lesa meira