Veðsett frá hausi aftur á sporð
EyjanDV upplýsir að Landsbankinn er með tólfta og þrettánda veðrétt í kvóta Magga ríka. Hvað er búið að veðsetja þessa fiska mikið – eða á maður að segja þorskígildi?
Straumur og bónusarnir
EyjanHvernig fæðist svona plan? Eins og hjá yfirmönnunum í Straumi sem vilja fá milljarða króna í bónusa fyrir að vinna vinnuna sem þeim er trúað fyrir? Byrjar þetta á fundi þar sem allir eru voða alvarlegir? Finnst þetta kannski alveg sjálfsagt? Á kaffistofunni – í góðum fílíng? Yfir glasi? Þar sem allir eru flissandi yfir Lesa meira
Reykjavík, höfuðborg Íslands, 1926
EyjanHlekkur á þessar gömlu og skemmtilegu Reykjavíkurmyndir fer eins og eldur í sinu um Facebook. Takið eftir manninum á hestinum með regnhlífina, Þvottalaugunum börnunum fallegu – og svo má sjá að opið er úr Austurstræti yfir á Austurvöll, þarna er ekki enn búið að byggja eftir brunann mikla 1915. [youtube=http://www.youtube.com/watch?v=xhgC1Fy2DVA]
Gömul grein
EyjanVefurinn AMX birtir tilvitnun í grein sem ég skrifaði fyrir mörgum árum og kallaðist Auðmenn fólksins. Ég hef reyndar alltaf verið mjög ánægður með þessa grein, og hef endurbirt hana á vefnum nokkrum sinnum. Síðast í febrúar á þessu ári. Ætli stíll greinarinnar megi ekki teljast kaldhæðnislegur, það var að minnsta kosti ætlunin. Þarna er Lesa meira
Áhrif frá Bretlandi
EyjanEitt sem mætti gera ítarlega rannsókn á eru tengsl Íslands og Bretlands síðustu áratugina. Það mætti jafnvel skrifa bók um þetta. Útrásarvíkingarnir litu til Bretlands eftir fyrirmyndum, þeir keyptu eignir þar; London var önnur höfuðborg Íslands á tíma þeirra. Davíð Oddsson sótti sínar pólitísku fyrirmyndir til Thatcher og breska Íhaldsflokksins; einkavæðingarstefnuna og andúðina á ESB. Lesa meira
Einkavinakapítalismi?
EyjanJón Steinsson, hagfræðingur í New York, setti þessa athugasemd inn á vefinn: — — — Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi Skilanefndar Landsbankans segir (á vísi.is): „Það er alveg af og frá að lán til Magnúsar Kristinssonar, útgerðarmanns í Vestmannaeyjum, hafi verið afskrifuð. Hvorki lán til hans né nokkurra félaga á hans vegum hafa verið afskrifuð. Við munum Lesa meira
Einkavæðing hin nýrri
EyjanAri Matthíasson sendi þennan pistil. — — — Nú fer fram einkavæðing hin nýrri. Þar fá sömu menn og klúðruðu efnahag þjóðarinnar og sinna fyrirtækja með ídjótískum fjárfestingum, skuldsetningu og röngum rekstrarákvörðunum að kaupa aftur fyrirtækin, en án íþyngjandi rekstrarskulda. Hvað er annars hægt að kalla þessa niðurfellingu skulda annað en einkavæðingu að nýju? Það Lesa meira
Auðmaður fær skuldaniðurfellingu
EyjanÞað hvílir mikil leynd yfir Landsbankanum og skilanefnd hans. DV á skúbb dagsins. Að Magnús Kristinsson, útgerðarmaður og einn af eigendum hins gjaldþrota fjárfestingarfélags Gnúps, hafi fengið tugmilljarða skuldir afskrifaðar í Landsbankanum. Er ekki kominn tími til að svipta aðeins hulunni af því sem Lárentínus Kristjánsson og félagar í skilanefnd Landsbankans eru að gera? Var Lesa meira
Hefnd Flokksins
EyjanHvað gera þeir svo við hattinn hans Hallgríms? Mun hann hanga eins og sigurtákn í höfuðstöðvum Sjálfstæðisflokksins vestra?
Mogginn um iðrun, fyrirgefningu, Landsbankann og ábyrgð
EyjanHann er athyglisverður leiðarinn sem birtist í Morgunblaðinu í dag, og má segja að þar birtist sjónarmið sem margoft hafa komið fram á þessum ver allt frá hruninu síðastliðið haust. Leiðarinn ber yfirskriftina Iðrun og fyrirgefning. „Það kemur betur og betur í ljós, eftir því sem meiri upplýsingar birtast um stöðu bankanna fyrir hrun, að Lesa meira
