Norskur ríkisborgari er talinn tengjast einum skelfilegustu hryðjuverkasamtökum níunda áratugarins
PressanFrá 1991 hefur maður nokkur búið í Skien í Noregi. Hann var nýlega handtekinn að beiðni franskra yfirvalda sem gruna hann um aðild að mannskæðri hryðjuverkaárás í París 1982. Maðurinn er talinn hafa verið í hryðjuverkahópi sem var kenndur við Abu Nidal en hann stóð fyrir hryðjuverkum í 20 löndum og varð um 900 manns að bana. Það var síðdegis Lesa meira
Anders Breivik sækir um reynslulausn
PressanNorski hryðjuverkamaðurinn Anders Breivik hefur sótt um reynslulausn úr fangelsi en hann afplánar nú 21 árs dóm fyrir hryðjuverk í Osló og á Útey þann 22. júlí 2011 þegar hann myrti 77 manns. 69 skaut hann til bana á Útey, aðallega ungmenni. Þann 24. ágúst 2012 var hann dæmdur í vistun í fangelsi, að lágmarki skal hann afplána 10 ár. Það Lesa meira
Ákærður fyrir að nauðga sambýliskonu sinni ítrekað – Tók svefnlyf með úr vinnunni og gaf henni
PressanTannlæknir er nú fyrir rétti í Osló en hann er ákærður fyrir að hafa nauðgað sambýliskonu sinni ítrekað á árunum 2014 til 2019. Hann er grunaður um að hafa gefið konunni sterk deyfi- og svefnlyf, sem hann tók með heim úr vinnunni, og að hafa síðan nauðgað henni á meðan hún var meðvitundarlaus. Samkvæmt frétt TV2 þá Lesa meira
Ný sönnunargögn í máli Anne-Elisabeth Hagen
PressanNorska lögreglan vinnur af miklum krafti að rannsókn á hvarfi Anne-Elisabeth Hagen sem hvarf frá heimili sínu í útjaðri Osló þann 31. október 2018. Lögreglan hefur meðal annars unnið út frá kenningu um að einn eða fleiri aðilar hafi ráðist á Anne-Elisabeth á baðherbergi heimilis hennar þennan örlagaríka morgun. TV2 skýrir frá þessu. Eiginmaður hennar, milljarðamæringurinn Tom Hagen, er grunaður um Lesa meira
Hlýjasta sumar sögunnar á Svalbarða
PressanSvalbarði, sem er eitt nyrsta byggða ból heims, er eitthvað sem við tengjum venjulega við kulda, snjó og ísbirni. En sumarið var mjög heitt þar, raunar það hlýjasta frá upphafi mælinga. Talsmaður norsku veðurstofunnar sagði að hitinn á Svalbarða hafi verið öfgakenndur í sumar og hækkandi hitastig hafi verið mjög greinilegt þar síðustu 30 ár. Lesa meira
Hefði getað orðið mesti harmleikur norskrar sögu – Margir heilaskaddaðir á eftir
PressanAðfaranótt sunnudagsins 27. ágúst var ólöglegt samkvæmi haldið í neðanjarðarbyrgi í Osló. Þar urðu tugir gesta fyrir kolsýrlingseitrun og voru nokkrir í lífshættu. Sem betur fer lést enginn en margir urðu fyrir heilaskaða. Dag Jacobsen, deildarstjóri á bráðadeild háskólasjúkrahússins í Osló, sagði í samtali við Norska ríkisútvarpið að líklega hafi bara munað nokkrum mínútum að Lesa meira
Aldrei hefur verið meiri samdráttur í Noregi en á öðrum ársfjórðungi
PressanMikill samdráttur varð í norska hagkerfinu á öðrum ársfjórðungi, svo mikill að aldrei fyrr hefur svo mikill samdráttur orðið á einum ársfjórðungi. Samkvæmt tölum frá norsku hagstofunni (Statistisk Sentralbyråd) nam samdrátturinn 6,3% miðað við sama tíma á síðasta ári. Þetta á við um hagkerfið á meginlandinu og hinn umfangsmikli olíuiðnaður er ekki tekinn með inn í þessa Lesa meira
Sjö í lífshættu eftir ólöglegt samkvæmi í Osló
Pressan24 voru fluttir á sjúkrahús í Osló í Noregi í nótt vegna gruns um kolsýringeitrun. Sjö eru sagðir vera í lífshættu. Lögreglu- og sjúkraflutningamenn þurftu að veita nokkrum lífsbjargandi aðstoð á vettvangi. Fólkið er á aldrinum 20 til 30 ára. Samkvæmt fréttum Norska ríkisútvarpsins og TV2 voru alls 24 fluttir á sjúkrahús, þar á meðal tveir lögreglumenn sem urðu Lesa meira
Tæplega helmingur kórónuveirusmitaðra í Noregi er fæddur erlendis
PressanÁ undanförnum mánuði hafa 4 af hverjum 10, sem hafa greinst með kórónuveiruna, sem veldur COVID-19, í Noregi, verið fólk sem er fætt utan Noregs. Á síðustu fjórum vikum var hlutfall, þeirra sem eru fæddir erlendis, 41% en vikurnar fjórar þar á undan var hlutfallið 44%. Þetta kemur fram í tölum frá norskum heilbrigðisyfirvöldum, Folkehelseinstituttet (FHI). Í Lesa meira
Getur app í síma Anne-Elisabeth leyst ráðgátuna um örlög hennar? „Tímamótaaðferð“
PressanNorska lögreglan hefur að undanförnu lagt mikla vinnu í að sviðsetja síðustu mínúturnar áður en Anne-Elisabeth Hagen hvarf frá heimili sínu á Sloraveien 4 í útjaðri Osló þann 31. október 2018. Athyglin hefur sérstaklega beinst að appi í farsíma hennar en það heitir „Sundhed“ og skráir fjölda skrefa og hversu margar tröppur notendur ganga dag hvern. VG skýrir frá þessu. Fram kemur að Lesa meira