Stærsti kókaínfundur sögunnar í Mexíkóborg
Lögreglan í Mexíkóborg skýrði frá því í gær að hún hefði lagt hald á 1,6 tonn af kókaíni og er þetta mesta magn kókaíns sem lögreglan í borginni hefur nokkru sinni lagt hald á. Fjórir hafa verið handteknir vegna málsins og eru þeir grunaðir um að tengjast Sinaloa-eiturlyfjahringnum.