Danska lögreglan hefur lagt hald á 430 bíla á fjórum mánuðum – Ný lög um brjálæðisakstur
PressanÞann 31. mars síðastliðinn tóku breytingar á dönsku umferðarlögunum gildi. Lögreglunni var þá gert kleift að leggja hald á ökutæki þeirra sem eru grunaðir um það sem kalla má brjálæðisakstur á íslensku. Síðan þá hefur lögreglan lagt hald á 428 ökutæki. Lögreglan leggur hald á ökutækin og síðan fara saksóknarar fram á það fyrir dómi Lesa meira
Lögreglumaðurinn með gyllta klósettið handtekinn
PressanRússneski lögreglumaðurinn Alexei Safonov var nýlega handtekinn ásamt sex öðrum í Stavropol í Rússlandi. Hann er grunaður um að hafa verið í forystu fyrir glæpagengi sem tók við milljónum rúbla í mútur frá flutningafyrirtækjum. Miðað við fréttir erlendra fjölmiðla þá virðist Safonov hafa lifað hátt og mun betur en hann átti að geta á launum lögreglumanns en hann starfaði í umferðardeild Lesa meira
Lögreglumaður skotinn til bana í Gautaborg
PressanLögreglumaður var skotinn til bana í Gautaborg í Svíþjóð í gærkvöldi. Þetta átti sér stað norðan við Biskopsgården í Hisingen. Lögreglumaðurinn stóð úti og var að ræða við fólk þegar skotið var á hópinn. Sænska lögreglan tilkynnti klukkan 22.34 að lögreglumaður hefði verið skotinn og fluttur særður á sjúkrahús. Skömmu fyrir klukkan þrjú í nótt var síðan staðfest Lesa meira
Sjóvá-Almennar þurfa að greiða kostnað vegna tjóns á lögreglubifreiðum
FréttirHéraðsdómur Reykjavíkur kvað í gær upp dóm í máli sem ríkislögreglustjóri höfðaði gegn tryggingafélaginu Sjóvá-Almennum vegna tjóns sem varð á tveimur lögreglubifreiðum í aðgerðum lögreglu í júní 2018. Niðurstaða héraðsdóms er að tryggingafélagið beri fulla og óskipta bótaskyldu vegna tjónsins. Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að ríkislögreglustjóri hafi höfðað málið til að Lesa meira
Lögreglumenn kærðir fyrir að taka mynd af nöktu líki
PressanTveir danskir lögreglumenn hafa verið kærðir fyrir að hafa tekið myndir með farsíma af látinni manneskju sem var nakin. Það var í tengslum við verkefni þeirra á vettvangi sem annar lögreglumaðurinn stillti sér upp hjá líkinu á meðan félagi hans tók myndir. Annar lögreglumannanna hefur einnig verið kærður fyrir að hafa stungið fingri niður í Lesa meira
Tveir handteknir vegna morðs á lögreglumanni
PressanFranska lögreglan handtók í gær tvo menn sem eru grunaðir um að hafa skotið lögreglumann til bana á miðvikudag í síðustu viku í Avignon. Mennirnir voru handteknir um 20 kílómetra utan við Avignon. Annar þeirra er talinn hafa skotið lögreglumanninn og hinn er grunaður um að hafa verið í vitorði með honum. Handtökurnar áttu sér stað nokkrum Lesa meira
Prestur krefst þess að lögreglan birti myndband af dauða svarts manns
PressanÍ gær var Andrew Brown jarðsettur í Elizabet City í Norður-Karólínu. Brown, sem var svartur, var skotinn til bana af lögreglunni þann 21. apríl. Hann var skotinn nokkrum skotum og varð skot, sem hæfði hann í hnakkann, honum að bana. Fjölskylda hans, vinir og baráttufólk fyrir mannréttindum var viðstatt útförina. Meðal þeirra sem töluðu við útförina var Al Sharpton, prestur og baráttumaður fyrir mannréttindum. Sharpton var Lesa meira
Þýska rannsóknarlögreglan átti í viðskiptum við svikafyrirtæki
PressanEftir að í ljós kom að þýska fjármálafyrirtækið Wirecard hafði ekki verið rekið á heiðarlegan hátt hélt þýska lögreglan áfram viðskiptum við það. Mál fyrirtækisins er eitt stærsta hneykslismálið í þýsku viðskiptalífi frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Fram á mitt ár 2020 tókst forsvarsmönnum fyrirtækisins að leyna því að í sjóði þess vantaði sem svarar til Lesa meira
Segja að svartur maður hafi verið skotinn í hnakkann af lögreglunni í Norður-Karólínu
PressanBandaríska alríkislögreglan FBI hefur hafið rannsókn á manndrápi í Elizabeth City í Norður-Karólínu þann 21. apríl síðastliðinn. Þá skaut lögreglan Andrew Brown Jr, 42 ára svartan mann, til bana. Dómsmálaráðuneytið mun koma að rannsókninni til að skera úr um hvort alríkislög hafi verið brotin. Roy Cooper, ríkisstjóri í Norður-Karólínu, hefur farið fram á að sérstakur Lesa meira
Danir hneykslaðir á lögreglumönnum – Brutu gegn sóttvarnarreglum – 20 smitaðir eftir samkvæmi
PressanMargir Danir eru hneykslaðir á lögreglumönnum og öðru starfsfólki lögreglustöðvanna Station Syd í Gentofte og Station Nord í Helsingør eftir að upp komst að starfsfólkið hafði haldið einkasamkvæmi og þar með brotið gegn fjöldatakmörkunum sem kveðið er á um í sóttvarnarreglum. Ekki nóg með að samkvæmi hafi verið haldið, heldur hafa um 20 greinst smitaðir af kórónuveirunni í kjölfarið. Þessu til viðbótar hafa tugir verið sendir í sóttkví. Lesa meira
