fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026

Innlent

Nýtt myndband frá Valby bræðrum

Nýtt myndband frá Valby bræðrum

Fókus
05.01.2017

Hafnfirska sveitin Valby bræður & 33MOB gáfu út á aðfangadag nýtt myndband við lag þeirra Laidback sem kom út síðastliðið sumar. Valbý bræður eru þeir Jakob Valby og Alexander Gabríel Hafþórsson. Myndbandið má sjá neðst í fréttinni. Bræðurnir ræddu við DV á síðasta ári, þeir eru hálfbræður, sammæðra og ólust upp saman. Bræðurnir fluttu af Lesa meira

Davíð slær frá sér í Staksteinum

Davíð slær frá sér í Staksteinum

Eyjan
05.01.2017

Jón Sigurðsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, gagnrýndi leiðaraskrif Morgunblaðsins um daginn í sjónvarpsviðtali á Hringbraut og sagðist ekki hafa séð eins harkalegar árásir fyrrverandi formanns stjórnmálaflokks á núverandi formann. Hann gerði ráð fyrir því að Davíð Oddsson héldi á penna í fyrrnefndum leiðara sem var árás á Bjarna Benediktsson. Í leiðaranum voru stjórnarmyndunarviðræður við Viðreisn harkalega gagnrýndar Lesa meira

Möguleikar skoðaðir á samstarfi Framsóknar, VG og Sjálfstæðisflokksins

Möguleikar skoðaðir á samstarfi Framsóknar, VG og Sjálfstæðisflokksins

Eyjan
05.01.2017

Þingflokkur VG hélt fund síðdegis í gær og virðist enn lifa í von Vinstri grænna og Framsóknarmanna um að komast í ríkisstjórn. Bæði eru meldingar í gangi til Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, auk þess sem mikill þrýstingur er settur á Bjarta framtíð um að fara ekki í þetta ríkisstjórnarsamstarf, þetta má lesa um í greiningu Lesa meira

Benedikt vill verða fjármálaráðherra

Benedikt vill verða fjármálaráðherra

Eyjan
05.01.2017

Benedikt Jóhannesson formaður Viðreisnar sækist eftir því að verða fjármálaráðherra ef Sjálfstæðisflokknum, Viðreisn og Bjartri framtíð tekst að mynda ríkisstjórn. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Viðræður flokkanna þriggja héldu áfram í gær og lauk fundi á sjötta tímanum, unnið er að því að ljúka stjórnarmynduninni fyrir vikulok. Líkt og Eyjan hefur greint frá Lesa meira

Samstarf við Viðreisn og Bjarta framtíð mætir mikilli tortryggni í Valhöll

Samstarf við Viðreisn og Bjarta framtíð mætir mikilli tortryggni í Valhöll

Eyjan
04.01.2017

Þungt hljóð var í mörgum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins á fundi þingflokksins í gær, þar sem fjallað var um mögulegt stjórnarsamstarf með Viðreisn og Bjartri framtíð. Margir þingmenn flokksins óttast nauman meirihluta í slíku samstarfi og eru líka ósáttir við hugmyndir sem settar hafa verið fram um skiptingu ráðuneyta. Eyjan hefur heimildir fyrir því að margir þingmenn Lesa meira

Ótrúleg tilviljun í Bjarnabúð: „Svona er heimurinn skemmtilegur“

Ótrúleg tilviljun í Bjarnabúð: „Svona er heimurinn skemmtilegur“

Fókus
04.01.2017

Skemmtileg en ótrúleg tilviljun átti sér stað í Bjarnabúð í Bolungarvík. Þann 29. desember síðastliðinn kom ung kona, Li, í búðina til að versla inn fyrir áramótin. Þar hitti hún verslunareigandann, Stefaníu Birgisdóttur. Konurnar höfðu aldrei hist áður en tengjast á óbeinan hátt, líkt og fram kemur á Pressunni. Stefanía segir: „Við fengum ótrúlega skemmtilegan Lesa meira

Það er ekkert hrun á næstunni

Það er ekkert hrun á næstunni

Eyjan
04.01.2017

„Krónan hefur styrkst verulega frá því að hún var lægst. Þeir voru og eru til sem töldu fall krónunnar sanna að hún væri „ónýt“ mynt. En krónan var aðeins mælistika sem mældi rétt og lagaði sig að mælingunni,“ svo segir í Staksteinum Morgunblaðsins í dag. Þar segir einnig hið augljósa að vextir séu háir og Lesa meira

Edda uppgötvaði eigin styrk þegar hún greindist með alvarlegan sjúkdóm: „Ég kom sjálfri mér á óvart“

Edda uppgötvaði eigin styrk þegar hún greindist með alvarlegan sjúkdóm: „Ég kom sjálfri mér á óvart“

Fókus
04.01.2017

Fréttakonan ástsæla Edda Andrésdóttir var að byrja að skrifa fimmtu bókina sína fyrir rúmu ári þegar hún lenti í bakslagi og þurfti að setja skrifin á ís. Ástæðan var sú að hún veiktist af alvarlegum augnsjúkdómi. Edda prýðir forsíðu janúar tölublaðs MAN sem kemur í verslanir á morgun, fimmtudag og í viðtali sem þar birtist Lesa meira

„Stofnun ferðamálaráðuneytis mun ekki leysa stærstu verkefni ferðaþjónustunnar“

„Stofnun ferðamálaráðuneytis mun ekki leysa stærstu verkefni ferðaþjónustunnar“

Eyjan
04.01.2017

Ragnheiður Elín Árnadóttir segir í viðtali á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld klukkan 20:00 að stofnun ferðamálaráðuneytis muni ekki leysa stærstu verkefni ferðaþjónustunnar. Hins vegar sé nýstofnuð Stjórnstöð ferðamála vettvangurinn til að vinna málum farveg í stjórnsýslunni sem komi við fjögur ráðuneyti. Hún segir að þar hafi tekist að móta stefnu fyrir næstu fimm ár í Lesa meira

Sjálfstæðisflokkurinn fær fimm ráðherra, Viðreisn þrjá og Björt framtíð tvo

Sjálfstæðisflokkurinn fær fimm ráðherra, Viðreisn þrjá og Björt framtíð tvo

Eyjan
04.01.2017

„Skipting ráðuneyta í nýrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar verður á þann veg að Sjálfstæðisflokkurinn fær fimm ráðherra, Viðreisn þrjá og Björt framtíð tvo. Þá mun Sjálfstæðisflokkurinn einnig fá forseta þingsins“ segir á visir.is. Það er í samræmi við heimildir Eyjunnar.is nema að stundum var nefnt að Viðreisn myndi ekki fá nema tvo ráðherra Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af