Hrund Rudolfsdóttir: Ég segi bara til hamingju við fjölskyldur sem eru klofnar í herðar niður vegna atkvæðagreiðslunnar
Fjölskyldur sem klofna í herðar niður vegna ágreinings um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna er væntanlega svo lánsamar að hafa aldrei fyrr lent í neinu sem reynir á, engin veikindi, dauðsföll eða annað slíkt. Við hljótum að geta tekist á við erfið mál og þetta er ekki í fyrsta skipti sem þjóðin skiptist í fylkingar um mál.