Ísland hefur ekkert vöðvaafl og við höfum hrakist undan veðrum og vindum norður í Ballarhafi í bæði eiginlegri og óeiginlegri merkingu. Við höfum alltaf þurft að vera í vari og njóta skjóls af einhverjum. Frá seinna stríði hafa það verið Bandaríkin en nú er það bara búið og við þurfum að finna nýtt skjól því það mun á það reyna hvort við höfum bakland á einhverjum tímapunkti. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:
Atburðir í heimspólitíkinni núna undanfarin örfá misseri, eitt og hálft ár, hafa náttúrlega gjörbreytt stöðunni og gert norðvestursvæðið í Evrópu mikilvægt og við erum að horfa á til dæmis opnun siglinga yfir Norðurskautið og þar fram eftir götunum og þar mun Ísland skipta máli. Þetta er aðgangur.
„Já, já, auðvitað er það það og auðvitað sjá þeir í því ákveðinn ávinning að fá svona betri aðgang að norðurslóðunum í gegnum aðild Íslands. En það er auðvitað líka það sem gerir það að verkum að Rússar og Kínverjar eru ekki áhugasamir um það að Ísland verði aðili að Evrópusambandinu vegna þess að þeir sjá auðvitað að þar með styrkir Evrópusambandið sig á þessum norðurslóðum. Það vilja þeir ekki. Og það ættu menn auðvitað að hafa í huga í sambandi við þessa umræðu alla að þar eru auðvitað ákveðnir hagsmunir sem að rekast á.“
Nákvæmlega og þetta auðvitað styrkir okkar stöðu sem umsóknarríki ef við ákveðum að staðfesta það að við séum umsóknarríki með virkar aðildarviðræður. Ef við samþykkjum það núna 29. þá erum við í miklu sterkari stöðu. Þegar við sóttum um 2009 gerðum við það í ákveðnum veikleika. Við vorum á hnjánum. Við komumst ansi langt í þeim samningaviðræðum. Það voru opnaðir þarna einhverjir 17 kaflar og 11 köflum lokað. Nú, við erum auðvitað, eins og þú hefur bent á og fleiri, við erum 75% inni í Evrópusambandinu. Við bara höfum ekkert um það að segja hvaða reglur við þurfum að innleiða. Við höfum aldrei verið í sterkari stöðu en einmitt núna og meðal annars út af þeirri stöðu sem er uppi í svona alþjóðastjórnmálum, skulum við segja. Það er komið viðskiptastríð milli stórvelda, tollastríð. Evrópusambandið er náttúrlega eitt stærsta tollabandalag heims, ef ekki það stærsta. En við, þessi 400.000 manna þjóð, við stöndum bara utan við þetta og sem hefur verið ágætt í sjálfu sér þegar allir voru sammála um að það ætti að afnema tolla sem mest og liðka fyrir alþjóðaviðskiptum. Það er ekki alveg eins góð staða, er það?
„Nei, það er ekki eins góð staða núna og það er líka sérkennileg mynd sem menn hafa af Íslandi. Það er eins og við höfum eitthvert vöðvaafl. Við höfum auðvitað ekkert vöðvaafl, ekki nokkurn skapaðan hlut. Við, hrekjumst svolítið fyrir veðri og vindum hérna úti í Ballarhafi og það er að segja, við erum að tala um veðri og vindum bæði hérna í eiginlegri merkingu og óeiginlegri, þ.e.a.s. á hinu pólitíska sviði og við þurfum og höfum alltaf þurft að vera í vari af einhverjum öflugri og stærri ríkjum. Við höfum alltaf verið það. Það er ekki eins og menn halda, að Ísland hafi verið algjörlega sjálfstætt og fullvalda í merkingunni að við höfum ekki deilt kjörum með neinum öðrum. Það er bara ekki þannig. Við höfum alltaf verið í ákveðnu vari og við vorum það auðvitað í vari þó að við höfum líka verið arðrænd af Dönum, þá vorum við í vari. Við höfðum þá ákveðið bakland í þeim og það var ákveðið vöðvaafl þó það væri kannski ekki mikið.
Svo erum við náttúrlega með Bandaríkin eftir seinna stríð. Það er bara búið og við verðum að hugsa til framtíðar hvar ætlum við að komast í eitthvert var. Þannig að við eigum bakland ef og þegar á bjátar því það mun reyna á það á einhverjum tímapunkti. Hvenær og hvernig það veit maður ekki en við þurfum að vera í einhverju vari.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.