Rússneskir útsendarar sagðir hafa staðið á bak við bréfsprengjur í nóvember
FréttirÞað voru útsendarar rússneskra yfirvalda sem stóðu á bak við bréfsprengjur sem voru sendar á ýmis heimilisföng á Spáni í nóvember, þar á meðal til forsætisráðherra landsins. New York Times skýrir frá þessu. Sex bréfsprengjur voru sendar til heimilisfanga á Spáni í nóvember. Bréfin voru stíluð á heimili Pedro Sanchez forsætisráðherra, varnarmálaráðuneytið og úkraínska og bandaríska sendiráðið. New York Times segir að bandarískir og spænskir embættismenn telji að Lesa meira
Bandaríkin senda Úkraínumönnum á annað hundrað brynvarin ökutæki
FréttirBandaríska varnarmálaráðuneytið, Pentagon, tilkynnti í gærkvöldi að Úkraínumenn fái nýjan pakka af hergögnum. Verðmæti hans er 2,5 milljarðar dollara. Í þessum pakka eru meðal annars 59 brynvarðir Bradley liðsflutningabílar og 90 brynvarin Stryker ökutæki. Áður hafði spurst út að Úkraínumenn myndu fá Bradley og Stryker ökutæki en báðar tegundirnar gera úkraínskum hermönnum kleift að ferðast um við víglínurnar á mun Lesa meira
Bandaríkjamenn senda Úkraínumönnum 150 brynvarin ökutæki
FréttirBandarísk stjórnvöld eru nú að leggja lokahönd á hjálparpakka handa Úkraínu. Þetta eru hergögn sem verða send til landsins. Embættismenn segja verðmæti pakkans vera 2,6 milljarðar dollara. AP hefur eftir ónafngreindum heimildarmönnum að meðal þess sem reiknað er með að verði í pakkanum séu 100 brynvarin ökutæki af gerðinni Stryker og að minnsta kosti 50 Lesa meira
Meiri snjókoma í kortunum í Bandaríkjunum – Biden heitir aðstoð alríkisins
FréttirMikið vetrarveður hefur herjað á stóran hluta Norður-Ameríku síðustu daga. Samkvæmt spám er reiknað með enn meiri snjókomu í dag með tilheyrandi kulda. Góðu fréttirnar eru þó þær að spár gera ráð fyrir að það fari að draga úr vetrarhörkunum þegar líður á vikuna. Að minnsta kosti 55 hafa látist af völdum veðursins í Bandaríkjunum Lesa meira
Demókratar sigruðu í kosningunum í Georgíu
EyjanKjósendur í Georgíuríki í Bandaríkjunum gengu að kjörborðinu í gær og kusu um sæti í öldungadeild Bandaríkjaþings. Demókratinn Raphael Warnock og Repúblikaninn Herschel Walker börðust um sætið. Enginn frambjóðandi fékk yfir 50% atkvæða í kosningunum í nóvember og því þurfti að kjósa aftur samkvæmt kosningalögum ríkisins. Stóru bandarísku fjölmiðlarnir, sem fylgjast með talningunni, segja að Warnock hafi sigrað en talning stendur enn yfir. Sigur Lesa meira
Sjö ára stúlka numin á brott og myrt – Sendill handtekinn
PressanSíðasta miðvikudag var Athena Strand, sjö ára, að leik í innkeyrslunni fyrir framan heimili föður hennar í Boyd í Texas. Þegar stjúpmóðir hennar kom út eftir um klukkustund var Athena horfin. Lögreglunni var strax tilkynnt um hvarf hennar og strax var lýst eftir henni á landsvísu. Lögreglan óttaðist frá upphafi að um mannrán væri að ræða og á Lesa meira
Lavrov er ósáttur við Vesturlönd og segir þau vilja eyðileggja Rússland
FréttirSergey Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir að Bandaríkin og NATO leiki hættulegan leik í Úkraínu með stuðningi sínum við Úkraínumenn í stríðinu gegn rússneska innrásarliðinu. Á fréttamannafundi í gær sagði hann að með aðgerðum sínum hafi Bandaríkin gert Úkraínu að ógn við tilvist rússnesku ríkisstjórnarinnar og því geti hún ekki horft fram hjá. Hann varði um leið árásir Rússar Lesa meira
Bandaríkin sögð íhuga að þjálfa enn fleiri úkraínska hermenn
FréttirStjórn Joe Biden, Bandaríkjaforseta, er að íhuga að láta bandaríska herinn taka að sér þjálfun enn fleiri úkraínskra hermanna en áður hafði verið ákveðið. Er rætt um að þjálfa allt að 2.500 hermenn á mánuði í bandarískri herstöð í Þýskalandi. CNN skýrir frá þessu og hefur eftir nokkrum embættismönnum í bandaríska stjórnkerfinu. Ef af þessu verður munu mun fleiri Lesa meira
Segir að refsiaðgerðirnar séu farnar að bíta og þessu megi Pútín ekki við
FréttirEf Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, dregur stríðið í Úkraínu á langinn eru engar líkur á að Vesturlönd slaki á refsiaðgerðum sínum gagnvart landinu. Það veldur því að Pútín á á hættu að fá unga Rússa upp á móti sér. Vesturlönd, með Bandaríkin og ESB í fararbroddi, hafa beitt Rússa hörðum refsiaðgerðum vegna innrásar þeirra í Úkraínu. Þess utan hefur stríðsgæfa Lesa meira
Bandaríkin íhuga að senda langdræg árásarvopn til Úkraínu
FréttirBandarísk stjórnvöld íhuga nú að verða við beiðni Boeing um að láta úkraínska herinn fá ódýrar litlar sprengjur sem er hægt að festa á flugskeyti sem nóg er til af. Sky News skýrir frá þessu og segir að með þessu geti Úkraínumenn gert árásir á Rússa miklu lengra bak við víglínuna en nú. Flugskeytin sem um ræðir Lesa meira