fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
433Sport

Jón Gnarr búinn að velja sér fótboltafélag til að halda með á Íslandi

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 5. júní 2025 07:32

Jón Gnarr er búinn að velja sér fótboltalið.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Gnarr, þingmaður, fyrrverandi borgarstjóri og grínisti, segist loksins búinn að velja sér fótboltafélag til að halda með á Íslandi.

Hann fer yfir þetta í skemmtilegu myndbandi á Facebook-síðu sinni þar sem hann greinir frá því að hann hafi í nokkurn tíma verið að leita sér að fótboltafélagi til að halda með.

„Hingað til hef ég haldið með öllum og engum en það sem hefur helst truflað mig er þessi tilhneiging Íslendinga að kalla fótbolta knattspyrnu. Þetta orð er komið frá Bjarna Jónssyni frá Vogi sem fann upp þetta nýyrði árið 1910 og mér bara leiðist þetta. Þetta er fótbolti fyrir mér,“ segir Jón í myndbandinu.

Hann bendir svo á að hann sé fæddur í Fossvoginum og eina fótboltaliðið sem hann hafi æft með sé Víkingur. Því væri kannski eðlilegt að halda með því en það getur hann ekki vegna þess að félagið heitir Knattspyrnufélagið Víkingur. „Ég gæti líka verið Valsari því ég lék Valla Valsara í mikilli fótboltamynd, Íslenski draumurinn,“ segir Jón en þar sem Valur heitir Knattspyrnufélagið Valur getur hann það ekki.

Hann nefnir svo að hann hafi búið í Vesturbænum í 30 ár og því væri kannski borðleggjandi fyrir hann að halda með KR. En þar sem félagið heitir Knattspyrnufélag Reykjavíkur getur hann það ekki. En hvaða lið er Jón þá búinn að velja sér?

Það er skemmst frá því að segja að Jón hefur ákveðið að halda með Íþróttafélagi Reykjavíkur, ÍR, í Breiðholti. Hann sýnir áhorfendum svo lista yfir þær íþróttir sem iðkaðar eru innan félagsins og þar er orðið fótbolti á lista.

Hann segir síðan að starfsemi ÍR hafi lengi verið í Vesturbænum, meira að segja á Landakotstúninu, steinsnar frá heimili Jóns, en þar æfði hann reyndar júdó löngu seinna.

„Ég er búinn að búa um alla borg eins og ÍR, er mikill Breiðholtsmaður, og svo er Ingigerður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri ÍR frænka mín,“ segir Jón sem klykkir út með eftirfarandi orðum: „Hér með tilkynnist það að ég er ÍR-ingur, áfram ÍR!“

Þess má geta að ÍR situr á toppi Lengjudeildar karla í fótbolta eftir 2-1 sigur á Þrótti í gær. ÍR er enn taplaust eftir sex leiki, hefur unnið fjóra og gert tvö jafntefli. Er liðið með 14 stig og situr eitt í toppsætinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Liverpool að klófesta mjög efnilegan markvörð

Liverpool að klófesta mjög efnilegan markvörð
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Búið að reka Ange Postecoglu

Búið að reka Ange Postecoglu
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Tíðindi frá Arsenal – Eru komnir langt á veg í viðræðum um kaup á öflugum framherja

Tíðindi frá Arsenal – Eru komnir langt á veg í viðræðum um kaup á öflugum framherja
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Vinkona Glódísar segir frá viðbjóðnum sem hún situr undir – Endalaust af óumbeðnum typpamyndum rignir yfir hana

Vinkona Glódísar segir frá viðbjóðnum sem hún situr undir – Endalaust af óumbeðnum typpamyndum rignir yfir hana
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Svona standa félögin á Englandi gagnvart reglum um peninga – Chelsea getur spreðað mest og Burnley í brasi

Svona standa félögin á Englandi gagnvart reglum um peninga – Chelsea getur spreðað mest og Burnley í brasi
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Landsliðið heimsækir Skotland í kvöld – Í opinni dagskrá

Landsliðið heimsækir Skotland í kvöld – Í opinni dagskrá
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Brynjar sagður hafa sagt upp störfum með skömmum fyrirvara – Nokkrir höfðu afboðað sig

Brynjar sagður hafa sagt upp störfum með skömmum fyrirvara – Nokkrir höfðu afboðað sig
433Sport
Í gær

Neville nokkuð hissa á því hvað Liverpool er að borga

Neville nokkuð hissa á því hvað Liverpool er að borga
433Sport
Í gær

Bannað að keyra um á rándýrum bíl sínum eftir skrefið umdeilda

Bannað að keyra um á rándýrum bíl sínum eftir skrefið umdeilda