Eitt Covid-19 smit til viðbótar hefur verið greint í tengslum við starfslið íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu. Smitin í kringum starfslið landsliðsins eru því orðin tvö talsins. Mbl.is greindi frá í dag.
Allir starfsmenn Knattspyrnusambands Íslands voru skimaðir fyrir veirunni á mánudaginn eftir að smit greindist í starfsliðinu fyrir leik Íslands gegn Belgíu í Þjóðardeild UEFA.
Umræddur starfsmaður er nú í einangrun.