,,Veiðiskapurinn hefur gengið vel það sem af er og kominn sex flott tröll á Kárastöðum,“ sagði Björn Hlynur Pétursson sem var á leiðinni á veiðislóð þegar við heyrðum í honum. En Kárastaðir eru við norðanvert við Þingvallavatn skammt frá ósum Öxará.
,,Ég kominn með yfir 50 fiska síðan 1.apríl og er á leiðinni á veiðislóð. Maður er mikið að veiða, það get ég sagt þér. Í fyrra veiddi ég næstum alla dagana nema tólf og í sumar ætla ég að gera ennþá betur. Veiðin er svo skemmtileg,“ sagði Björn Hlynur ennfremur.
Mynd. Björn Hlynur Björnsson með flottan urriða en hann veiðir mikið.