fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024

Andrea hefur leik í dag á Opna breska áhugamannamótinu

Arnar Ægisson
Þriðjudaginn 14. ágúst 2018 11:28

Andrea Bergsdóttir, GKG. Mynd:seth

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andrea Bergsdóttir úr GKG hefur leik í dag á Opna breska áhugamannamótinu fyrir kylfinga 18 ára og yngri. Í dag er leikinn höggleikur og komast 64 efstu áfram í holukeppnina sem tekur við í framhaldinu.

Andrea er búsett í Svíþjóð en hefur á undanförnum misserum leikið fyrir stúlknalandslið Íslands og hún verður í A-landsliði kvenna sem keppir á Heimsmeistaramóti áhugakylfinga á Írlandi í lok ágúst.

Mótið er eitt sterkasta áhugamannamót heims í þessum aldursflokki. Mótið á sér langa sögu en fyrst var keppt árið 1919. Margir þekktir kylfingar hafa sigrað á þessu móti. Má þar nefna Georgia Hall frá Englandi sem sigraði nýverið á Opna breska meistaramótinu.

Mótið fer fram á Ardglass vellinum rétt suður af Belfast á Norður-Írlandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Pochettino brjálaður eftir leikinn: Eru að skemma enskan fótbolta – ,,Ótrúlegt og fáránlegt“

Pochettino brjálaður eftir leikinn: Eru að skemma enskan fótbolta – ,,Ótrúlegt og fáránlegt“
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Ólga í sjónvarpsgeiranum: Missir verkefni til bróður síns sem er kærður fyrir kynferðisbrot gegn dóttur hans

Ólga í sjónvarpsgeiranum: Missir verkefni til bróður síns sem er kærður fyrir kynferðisbrot gegn dóttur hans
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

England: Chelsea kom til baka á Villa Park

England: Chelsea kom til baka á Villa Park
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Marsþyrla NASA er með „lokagjöf“ handa mannkyninu – En það er einn hængur á

Marsþyrla NASA er með „lokagjöf“ handa mannkyninu – En það er einn hængur á