
Atvikið átti sér stað á sunnudag þegar hjónin Erika Lindemyer og Jake Lindemyer komu á staðinn. New York Post fjallar um þetta.
Samkvæmt myndbandi sem Erika tók upp neituðu tveir starfsmenn að afgreiða þau þar sem Jake klæddist hettupeysu með nafni Donalds Trump Bandaríkjaforseta.
Í myndbandinu má heyra starfsmennina segja að þeim „líði ekki vel“ með að veita þjónustu vegna klæðnaðarins. Hjónin mótmæltu og sögðu um mismunun að ræða á grundvelli pólitískra skoðana.
Orðaskiptin hitnuðu og vísaði annar starfsmaðurinn hjónunum á dyr og sagði að starfsfólk hefði rétt til að neita þjónustu.
Í kjölfarið birti annar starfsmaðurinn myndband þar sem hún sagðist vera undir lögaldri og að hún hefði verið tekin upp án leyfis. Hún hvatti jafnframt fólk til að hjálpa sér að fá myndbandið fjarlægt af netinu og sagði að hún hefði orðið fyrir hatursorðræðu í athugasemdakerfum.
Smoothie King staðfesti í yfirlýsingu að starfsmennirnir sem komu að málinu starfi ekki lengur hjá fyrirtækinu. Þar segir að fyrirtækið leggi áherslu á að verslanir þess séu lausar við hvers kyns mismunun og að bæði gestir og starfsmenn skuli njóta virðingar.
Eigandi staðarins í Ann Arbor mun jafnframt innleiða skyldubundna endurþjálfun fyrir starfsfólk þar sem farið verður yfir þjónustustaðla fyrirtækisins.
@redmonroe3 Facebook Live Posted By Erika Lindemyer Expressed How Disgusted She Was Due To Being Denied Service At Smoothie King After Employees Refused To Serve Her & Her Husband Jake Lindemyer Because He Wore A Trump Hoodie Inside The Establishment !!!! Do You Agree Or Disagree ?! Share Your Thoughts In The Comments 🤔 #smoothieking #discriminationawareness #youabouttoloseyourjob #foryoupage❤️❤️ ♬ original sound – Red Monroe