fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Pressan

Ríkisstjóri Texas eyddi færslu um árásina á Íran eftir neyðarleg mistök

Pressan
Þriðjudaginn 3. mars 2026 10:24

epa08305184 Texas Governor Greg Abbott holds a press conference to discuss new measures after the first confirmed death in Texas, in Arlington, Texas, USA, 18 March 2020. The first confirmed COVID-19 coronavirus death in Texas occurred a day earlier in Arlington. EPA-EFE/LARRY W. SMITH

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Internetið er orðið erfitt viðureignar vegna upplýsingaóreiðu og falsfrétta. Þessu fékk ríkisstjóri Texas, Greg Abbott, að kynnast á dögunum eftir að hann deildi myndbandi á samfélagsmiðlinum X.

Abbott taldi sig vera að deila raunverulegu myndbandi sem sýndi bandarískt stríðsskip skjóta niður íranska flugvél. Myndbandið birti ein af fjölmörgum stuðningssíðum Donalds Trump Bandaríkjaforseta á miðlinum en í færslunni sagði: „Írönsk flugvél á móti bandarísku skipi. Ég gæti horft á þetta í allan dag.“

Netverjar voru fljótir að benda á mistökin og gerðu athugasemd við deilingu ríkisstjórans og bentu á að þarna væri um upptöku úr tölvuleik að ræða. Tölvuleikurinn kallast War Thunder og á að gerast í seinni heimsstyrjöldinni. Ríkisstjórinn eyddi deilingunni í framhaldinu en skaðinn var þegar skeður.

Blaðamaðurinn Alex Driggars skrifar:

„Greg Abbott ríkisstjóri deildi – og eyddi svo – myndbandi í kvöld sem átti að sýna bandarísk skip skjóta niður íranska flugvél. „Bæ, bæ,“ skrifaði hann. En þetta er ekki raunverulegt. Myndskeiðið, eins og netverjar hafa bent á, virðist koma úr seinni heimsstyrjaldar tölvuleik sem kallast War Thunder.“

Wired bendir á að miðillinn X, sem er í eigu auðkýfingsins Elon Musk, hafi fyllst af falsfréttum eftir að Trump tilkynnti að Bandaríkin og Ísrael stæðu sameiginlega að stórri hernaðaraðgerð gegn Íran. Miðillinn greindi hundruð myndbanda um helgina og fann fjölmörg dæmi um myndbönd sem áttu að sýna átökin um helgina en reyndust svo vera nokkurra mánaða eða jafnvel nokkurra ára gömul og tekin annars staðar en haldið var fram. Eins fundust dæmi um myndbönd sem voru gerð með gervigreind.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Varpa sprengju í nýrri mynd um hvarf Madeleine McCann

Varpa sprengju í nýrri mynd um hvarf Madeleine McCann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný heimildarmynd endurlífgar umræðuna um andlát Heather O‘Rourke – Hvíldi bölvun á henni?

Ný heimildarmynd endurlífgar umræðuna um andlát Heather O‘Rourke – Hvíldi bölvun á henni?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Elskar þú snjó? – Þá eiga þessi persónuleikaeinkenni líklegast við um þig

Elskar þú snjó? – Þá eiga þessi persónuleikaeinkenni líklegast við um þig
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta getur gert kraftaverk fyrir líkamann

Þetta getur gert kraftaverk fyrir líkamann
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fór í skurðaðgerð eftir heilablóðfall og vaknaði upp með nýjan hreim

Fór í skurðaðgerð eftir heilablóðfall og vaknaði upp með nýjan hreim
Pressan
Fyrir 3 dögum

Það getur kostað þig fangelsisdóm að taka nikótín með í fríið

Það getur kostað þig fangelsisdóm að taka nikótín með í fríið