fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Pressan

Vopnabúr Írana dregur langt inn í Evrópu – Óttast að hryðjuverkahópar verði virkjaðir

Pressan
Þriðjudaginn 3. mars 2026 07:00

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vaxandi ótti er um getu Írans til að ráðast á skotmörk djúpt inn í Evrópu og á sama tíma er varað við því að hryðjuverkahópar, hliðhollir írönskum stjórnvöldum, verði mögulega virkjaðir til hefndarárása.

„Íransstjórn hefur ítrekað sýnt að hún beitir hryðjuverkum utan eigin landamæra,“ segir þingmaðurinn Marc Henrichmann í samtali við dagblaðið Süddeutsche Zeitung.

Henrichmann er formaður þingnefndar sem hefur eftirlit með leyniþjónustustofnunun Þýskalands. Hann segir að ekki sé hægt að útiloka hefndaraðgerðir, þar á meðal af hálfu íranska hryðjuverkahópa sem liggja í dvala (e. sleeper cells) í Evrópu.

Átökin í Mið-Austurlöndum hafa harðnað mjög síðustu daga og hafa Íranir gert hefndarárásir meðal annars í Dúbaí, Kúvæt, Katar, Sádi-Arabíu og á breska herstöð á Kýpur.

Breska blaðið Daily Mail varpaði í dag ljósi á vopnabúr íranska hersins, en herinn býr yfir langdrægum eldflaugum sem geta flogið allt að þrjú þúsund kílómetra.

Hættulegasta eldflaugin í vopnabúri þeirra heitir Khorramshahr 4, en samkvæmt bandarísku hugveitunni Foundation for Defence of Democracies hefur hún 2.000 til 3.000 kílómetra drægni og getur borið sprengjuodd sem vegur eitt og hálft tonn.

Ef hún yrði notuð gæti hún náð til stórs hluta Evrópu, þar á meðal Grikklands, Ítalíu, Þýskalands, Póllands, Danmerkur og Svíþjóðar. Árásin á bresku herstöðina í Kýpur sýnir að yfirvöld í Íran veigra sér ekki við að ráðast á önnur ríki, jafnvel þó þau hafi enga beina aðkomu að átökunum.

Það eru ekki bara Þjóðverjar sem hafa áhyggjur af hryðjuverkahópum því John Healey, varnarmálaráðherra Bretlands, sagði í gær að hætta væri á „vaxandi og handahófskenndum hefndaraðgerðum Írans“ og átti þar við hryðjuverkaárásir.

Breska leyniþjónustan, MI5, hefur áður varað við því að einstaklingar hliðhollir írönskum yfirvöldum hafi ítrekað reynt að framkvæma hryðjuverk í Bretlandi á síðustu tólf mánuðum.

Colin Clarke, framkvæmdastjóri Soufan Centre, bandarískrar hugveitu á sviði leyniþjónustu og öryggismála, segist reikna með að Íranir beiti öllum tiltækum ráðum til að valda sem mestum skaða.

„Fyrir Íran er þetta stríð spurning um tilvist. Vegna þess myndi ég fyllilega búast við að yfirvöld í Teheran virki þá hryðjuverkahópa sem liggja í dvala á Vesturlöndum til að gera hlutina sársaukafulla fyrir Bandaríkin og Ísrael. Hezbollah og aðrir tengdir aðilar gætu vel reynt að fremja árásir í Evrópu og Norður-Ameríku.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Varpa sprengju í nýrri mynd um hvarf Madeleine McCann

Varpa sprengju í nýrri mynd um hvarf Madeleine McCann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný heimildarmynd endurlífgar umræðuna um andlát Heather O‘Rourke – Hvíldi bölvun á henni?

Ný heimildarmynd endurlífgar umræðuna um andlát Heather O‘Rourke – Hvíldi bölvun á henni?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Elskar þú snjó? – Þá eiga þessi persónuleikaeinkenni líklegast við um þig

Elskar þú snjó? – Þá eiga þessi persónuleikaeinkenni líklegast við um þig
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta getur gert kraftaverk fyrir líkamann

Þetta getur gert kraftaverk fyrir líkamann
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fór í skurðaðgerð eftir heilablóðfall og vaknaði upp með nýjan hreim

Fór í skurðaðgerð eftir heilablóðfall og vaknaði upp með nýjan hreim
Pressan
Fyrir 3 dögum

Það getur kostað þig fangelsisdóm að taka nikótín með í fríið

Það getur kostað þig fangelsisdóm að taka nikótín með í fríið