fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
Pressan

Fór heim og grét eftir tökur á kynlífssenum Bridgerton

Pressan
Föstudaginn 20. mars 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkona í vinsælu þáttunum Bridgerton hefur sagt að hún hafi „farið heim og grátið“ eftir að hafa tekið upp kynlífssenur. 

Þeir sem horft hafa á þáttaraðirnar fjórar vita að slíkar senur eru ekki sjaldgæfar í þeim og margar þeirra eru ansi djarfar. Leikararnir ættu því að vita hvað vinnan fól í sér þegar þeir skrifuðu undir samninga, en svo virðist sem ein aðalleikkonan hafi ekki áttað sig á því.

Ruth Gemmell, sem leikur Lady Violet Bridgerton, móður Bridgerton systkinanna átta, lýsti því hvernig hún komst fyrst að því að hún ætti að leika í kynlífssenu með meðleikara sínum Daniel Francis þegar hún var í búningamátun.

Í fjórðu þáttaröð Bridgerton, sem kom út í síðasta mánuði, nær samband ekkjunnar Violet og Lord Marcus Anderson loksins hámarki, sem þýddi að nokkrar kynlífssenur voru framundan með þeim tveimur.

Í viðtali við Ciné-Télé-Revue í febrúar sagði Gemmell að hún hefði verið „sjokkeruð“ þegar hún komst að því að hún ætti að taka upp nokkrar nánar senur og að hún hefði „enga hugmynd“ haft áður um að slíkar senur væru fyrirhugaðar.

Hún sagði við miðilinn: „Ég var svolítið sjokkeruð. Ég var í búningamátun og áttaði mig á því að ég var að gera mig tilbúna fyrir eitthvað sem ég hafði enga hugmynd um að myndi gerast. Gemmell, 58 ára, hélt áfram og sagði að eftir senuna hefði hún „farið heim og grátið“ af sjokki.

Eftir að hafa náð sér eftir áfallið segist hún sátt við hvernig senurnar eru í endanlegri mynd.

„Sem betur fer tókum við á þessu á aðeins annan hátt en yngi leikararnirí þáttunum, því ég held ekki að neinn myndi vilja horfa á þetta í raun og veru.“

Gemmell bætti við að „mikið af daufri lýsingu“ hefði verið notað við tökur.

Gemmell segir að henni finnist mikilvægt að sýna Violet upplifa nánd eftir að eiginmaður hennar, Edmund, lést nokkrum árum áður. „Við deyjum ekki eftir ákveðinn aldur,“ sagði hún. „Svo það er nokkuð gott að geta sýnt það á einhvern hátt.“

Leikkonan bendir einnig á að þeir sem eldri eru og hafa reynslu að baki nálgast ástina með öðrum hætti en yngri kynslóðin.

„Það er mjög yndislegt að sjá unga ást og fyrstu ástina, en það er líka mjög mikilvægt og yndislegt að sjá einhvern sem hefur elskað og misst og syrgt og er með fullt af reynslu í farteskinu, því allir geta samsamað sig við það, og ég held að það sé mikilvægt að sýna það.“

Mun Violet fá eigin þáttaröð? 

Framleiðandinn Shonda Williams hefur talað um möguleikann á hliðarþáttaröð sem myndi fjalla um Violet.

„Þetta er möguleiki sem  við erum spennt fyrir. Ég hef alltaf sagt að ef við ætluðum að gera hliðarsögu, þá væri Violet frábær manneskja til að segja söguna um, Bridgertonmóðirin.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Tekinn af lífi fyrir svívirðilegan glæp – „Loksins er þessu lokið“

Tekinn af lífi fyrir svívirðilegan glæp – „Loksins er þessu lokið“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tók DNA-próf hjá Ancestry til að fræðast um ættir sínar – Það átti eftir að varpa ljósi á ótrúleg mistök

Tók DNA-próf hjá Ancestry til að fræðast um ættir sínar – Það átti eftir að varpa ljósi á ótrúleg mistök
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ísraelsmenn drápu yfirmann öryggisráðs Írans í nótt – Hótaði Trump í síðustu viku

Ísraelsmenn drápu yfirmann öryggisráðs Írans í nótt – Hótaði Trump í síðustu viku
Pressan
Fyrir 3 dögum

Par dæmt í fangelsi fyrir að eltihrella þroskahamlaðan starfsmann kjúklingastaðar

Par dæmt í fangelsi fyrir að eltihrella þroskahamlaðan starfsmann kjúklingastaðar