
Konan sem um ræðir, Stacey Sharples, frá Farnworth á Stór-Manchester svæðinu, játaði sök í tíu ákæruliðum fyrir að hafa torveldað framgang réttvísinnar með því að leggja fram, gegn betri vitund, nauðgunarkærur á árunum 2013 til 2019.
Málið var tekið fyrir við krúnudómstólinn í Bolton þar sem fórnarlömbin lýstu alvarlegum afleiðingum ásakananna á líf sitt.
Samkvæmt framburði mannanna leiddu ásakanirnar til þess að margir þeirra misstu vinnu, sambönd og umgengni við börn sín. Einn þeirra sagði líf sitt hafa „snúist á hvolf“ daginn sem hann var ranglega sakaður um nauðgun og að hann hefði í kjölfarið misst allt samband við foreldra sína, maka og starfið sitt. Annar lýsti því að hann hefði orðið heimilislaus og setið árum saman uppi með afleiðingar málsins á meðan hann reyndi að hreinsa nafn sitt.

Lögregla hóf rannsókn málsins fyrir alvöru eftir að í ljós kom að ýmislegt í framburði hennar stangaðist á við rannsóknargögn. Að mati lögreglu var um að ræða meðvitaðar og samfelldar rangar sakargiftir, þrátt fyrir að hún hafi vitað hvaða afleiðingar þær gætu haft fyrir þá sem í hlut áttu.
Í frétt breska ríkisútvarpsins, BBC, kemur fram að flestir mannanna hafi verið handteknir og þeir hafi setið um tíma í gæsluvarðhaldi. Sumir þurftu að gangast undir ítarlegar og viðkvæmar læknisrannsóknir og nær allir þurftu að fylgja ströngum skilyrðum gegn því að fá að ganga lausir á meðan mál þeirra voru til rannsóknar.
Einn mannanna sagði líf sitt hafa verið „betra en nokkru sinni fyrr“ áður en hann var handtekinn vegna ásakananna, en að hann hefði fljótlega eftir það misst heimili sitt. Annar sagði hann hafa misst af mikilvægum tímamótum í lífi dóttur sinnar þar sem honum var meinaður umgengnisréttur eftir að kærurnar komu fram.
Rannsóknarlögreglumaður sem stýrði málinu hrósaði þrautseigju mannanna og sagði dóminn mikilvægan til að þeir upplifðu að réttlæti hefði náð fram að ganga. Jafnframt hvatti hann fólk sem verður fyrir kynferðisofbeldi til að láta mál eins og þetta ekki draga úr sér kjarkinn til að leita aðstoðar hjá lögreglu.
Í umfjöllun BBC er rætt við einn mannanna sem sakaður var í málinu, hinn þrítuga Andrew Dearden. Hann segist hafa kynnst Stacey á stefnumótaforriti og þau hefðu mælt sér mót til að stunda kynlíf. Allt hafi gengið vel og þau stundað kynlíf með samþykki beggja.
Áður en hann vissi af knúði lögregla dyra á heimili hans þar sem hann var handtekinn vegna gruns um nauðgun. „Þetta var hræðileg tilfinning. Þetta hefur tekið mikið á bæði andlega og líkamlega og þetta mál mun hafa áhrif á mig það sem ég á eftir ólifað,” segir hann.