fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Pressan

Faðir fangelsaður eftir að áverkar fundust á þriggja mánaða syni hans

Pressan
Fimmtudaginn 19. mars 2026 21:30

Drew Babcock. Lögreglumynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrjátíu og sex ára gamall maður í bænum Nashua í New Hampshire, BNA, hefur verið handtekinn og ákærður fyrir alls átta brot er varða alvarlegt heimilisofbeldi. Ákæran er tilkomin vegna áverka sem fundust á þriggja mánaða syni mannsins.

Maðurinn heitir Drew Babcock en hann var handtekinn í kjölfar tilkynnningar frá barnaverndaryfirvöldum á svæðinu. Heimilislæknir fann áverka á barninu er amma þess kom með það vegna kvefeinkenna. Drengurinn reyndist vera með yfir 30 sprungur og marbletti á líkamanum.

Læknirinn gerði barnavernd viðvart sem tilkynnti málið til lögreglu. Frekari rannsókn lögreglu staðfesti grun um að faðir drengsins, Drew Babcock, bæri ábyrgð á áverkunum á drengnum.

Í yfirheyrslum viðurkenndi Babcock að kreista stundum drenginn, tvisvar til þrisvar í viku. Hann sagðist drenginn vera mjög óværan og kveisugjarnan og viðurkenndi að hann gripi stundum til örþrifaráða til að reyna að þagga niður í honum.

Saksóknari í málinu, Melissa Farr, segir að játningar Babcock við lögreglu séu hrollvekjandi.

Babcock kom nýlega fyrir dóm og var birt ákæra. Dómari í málinu hefur úrskurðað að hann skuli sitja í gæsluvarðhaldi fram yfir réttarhöldin og hann geti ekki fengið sig lausan gegn tryggingu.

Sjá nánar um málið hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hefur búið í bakpoka í 5 ár – Hefur ferðast til 32 landa og deilir ódýrum ferðaráðum

Hefur búið í bakpoka í 5 ár – Hefur ferðast til 32 landa og deilir ódýrum ferðaráðum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Gaf út bók um dauða eiginmannsins – Örfáum vikum síðar hrundi spilaborgin með látum

Gaf út bók um dauða eiginmannsins – Örfáum vikum síðar hrundi spilaborgin með látum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þetta er besta landið fyrir ellilífeyrisþega – Hægt að lifa góðu lífi fyrir 260.000 á mánuði

Þetta er besta landið fyrir ellilífeyrisþega – Hægt að lifa góðu lífi fyrir 260.000 á mánuði
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hafnaði 4500 milljóna boði í húsið

Hafnaði 4500 milljóna boði í húsið