fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Pressan

Dularfullt hvarf ungs manns í Barcelona – Hvað gerðist?

Pressan
Fimmtudaginn 19. mars 2026 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögregla í spænsku borginni Barcelona rannsakar nú hvarf bandarísks háskólanema eftir að hann sást síðast yfirgefa næturklúbb í Barcelona snemma að morgni þriðjudags. Grunur leikur á að saknæmu athæfi, samkvæmt spænskum fjölmiðlum.

Hinn tvítugi James Paul Gracey, nemi við Háskólann í Alabama, sást á öryggismyndavél ganga út af vinsælum næturklúbbi, Shoko, í borginni ásamt óþekktum aðila um klukkan þrjú um nótt. Vinir hans höfðu þá þegar yfirgefið staðinn, en Gracey ákvað að vera eftir.

Fjölmiðlar í Bandaríkjunum, New York Post þar á meðal, hafa fjallað ítarlega um hvarf James síðustu daga. James var staddur á Spáni í svokölluðu vorleyfi (e. spring break) og hugðist hann heimsækja vini sína sem eru við nám í borginni.

Vinir hans tilkynntu hvarf hans á þriðjudag þegar hann skilaði sér ekki á Airbnb-gististað þar sem hópurinn dvaldi. Aðstandendur hans segja hegðunina afar óvenjulega og lýsa yfir miklum áhyggjum.

„Jimmy er góður og ábyrgur sonur og bróðir. Það er algjörlega ólíkt honum að láta ekki vita af sér við fjölskyldu og vini,“ segir í yfirlýsingu frá fjölskyldu hans sem New York Post vitnar til. James er frá Elmhurst í Illinois.

Lögreglan í Barcelona hefur hefur að sögn fundið farsíma hans og staðfest að unnið sé að rannsókn á málinu. Leit stendur nú yfir í nágrenni næturklúbbsins og við gististaðinn þar sem hann dvaldi. Enn sem komið er er enginn grunaður um aðild að hvarfi hans.

Móðir hans hefur jafnframt biðlað til almennings á samfélagsmiðlum og óskað eftir upplýsingum um ferðir sonar síns. Næturklúbburinn sem Gracey heimsótti telst meðal þekktari skemmtistaða í Barcelona og var á síðasta ári valinn einn sá besti í heimi samkvæmt alþjóðlegri úttekt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hefur búið í bakpoka í 5 ár – Hefur ferðast til 32 landa og deilir ódýrum ferðaráðum

Hefur búið í bakpoka í 5 ár – Hefur ferðast til 32 landa og deilir ódýrum ferðaráðum
Pressan
Í gær

Gaf út bók um dauða eiginmannsins – Örfáum vikum síðar hrundi spilaborgin með látum

Gaf út bók um dauða eiginmannsins – Örfáum vikum síðar hrundi spilaborgin með látum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þetta er besta landið fyrir ellilífeyrisþega – Hægt að lifa góðu lífi fyrir 260.000 á mánuði

Þetta er besta landið fyrir ellilífeyrisþega – Hægt að lifa góðu lífi fyrir 260.000 á mánuði
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hafnaði 4500 milljóna boði í húsið

Hafnaði 4500 milljóna boði í húsið