fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Pressan

Árás á samkomuhús gyðinga í Michigan – Hefnd eftir að hafa misst ættingja sína í loftárás

Pressan
Föstudaginn 13. mars 2026 09:30

Lögregla var með mikinn viðbúnað á vettvangi. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður sem grunaður er um að hafa ætlað að fremja fjöldamorð í samkomuhúsi gyðinga í West Bloomfield í Michigan í gær er sagður hafa verið drifinn áfram af hefnd eftir að hafa misst ættingja sína í loftárásum Ísraelshers í Líbanon nýlega.

Maðurinn sem um ræðir, Ayman Mohamad Ghazali, 41 árs, ók bifreið sinni inn í húsið og hóf skothríð. Hann var aftur á móti skotinn til bana áður af öryggisverði á staðnum áður en honum tókst að gera frekari skaða. Einn öryggisvörður slasaðist þegar hann varð fyrir bifreið Aymans, en hann er ekki í lífshættu.

Ayman, sem fæddist í Líbanon en var bandarískur ríkisborgari, er sagður hafa misst ættingja sína í loftárásum nýlega og er talið að hann hafi viljað hefna fyrir það. Hann er sagður hafa misst meðal annars tvo bræður sína í umræddri árás.

Lögregla gerði húsleit á heimili mannsins í úthverfi Detroit í gærkvöldi. Hann var starfsmaður veitingastaðar, en samkvæmt opinberum gögnum kom hann til Bandaríkjanna frá Líbanon árið 2011 og fékk bandarískan ríkisborgararétt árið 2016.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Flugfreyja afhjúpar viðbjóðslegustu hegðunina sem hún hefur séð hjá farþegum

Flugfreyja afhjúpar viðbjóðslegustu hegðunina sem hún hefur séð hjá farþegum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Moldríkir bræður í vondum málum

Moldríkir bræður í vondum málum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins
Pressan
Fyrir 4 dögum

Margir rafbílaeigendur gera þessi mistök í kuldanum

Margir rafbílaeigendur gera þessi mistök í kuldanum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Það hvernig þú drekkur kaffi afhjúpar lítt þekkta hlið á persónuleikanum

Það hvernig þú drekkur kaffi afhjúpar lítt þekkta hlið á persónuleikanum