fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Pressan

Moldríkir bræður í vondum málum

Pressan
Miðvikudaginn 11. mars 2026 07:00

Alon Alexander og Oren Alexander hafa verið sakfelldir. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrír bræður, þar á meðal tveir af þekktustu fasteignasölum Bandaríkjanna á sviði lúxuseigna, voru á mánudag sakfelldir í New York fyrir samsæri um mansal í kynferðislegum tilgangi eftir fimm vikna réttarhöld.

Bræðurnir, tvíburarnir Oren og Alon Alexander, 38 ára, og eldri bróðir þeirra Tal Alexander, 39 ára, voru fundnir sekir í öllum tíu ákæruliðum málsins. Saksóknarar sögðu bræðurna hafa notað fíkniefni og þvinganir til að nauðga konum yfir langt tímabil.

Alls báru ellefu konur vitni fyrir dómi og sögðu að einn eða fleiri bræðranna hefðu ráðist á sig kynferðislega. Að sögn saksóknara hafa meira en 60 konur lýst því yfir að þær hafi orðið fyrir ofbeldi af hálfu bræðranna.

Samkvæmt vitnisburði fór hluti atvikanna fram eftir að konum var boðið í ferðalög á lúxusáfangastaði, meðal annars til Hamptons, í siglingu um Karíbahaf og í skíðaferð til Aspen í Colorado.

Verjendur bræðranna héldu því fram að framburður kvennanna væri óáreiðanlegur og að sumar þeirra væru að reyna að hagnast á auðæfum bræðranna. Lögmennirnir viðurkenndu þó að bræðurnir hefðu verið miklir kvennabósar, en sögðu allt kynlíf hafa verið með samþykki.

Oren og Tal Alexander störfuðu áður sem fasteignasalar hjá fasteignarisunum Douglas Elliman áður en þeir stofnuðu eigið fyrirtæki, Official. Alon Alexander starfaði hins vegar hjá einkavörslu- og öryggisfyrirtæki fjölskyldunnar.

Auk sakamálsins standa bræðurnir frammi fyrir fjölda einkamála. Þar á meðal er mál sem Tracy Tutor, sem þekkt er úr raunveruleikaþættinum Million Dollar Listing Los Angeles, höfðaði. Hún heldur því fram að Oren Alexander hafi byrlað henni lyf og ráðist á hana á salerni veitingastaðar í New York þegar þau voru þar vegna fasteignaviðburðar.

Við réttarhöldin sögðu margar konur sem báru vitni að þær teldu að þeim hefði verið byrlað og lýstu sumar því að þær hefðu misst alla stjórn eftir að hafa drukkið tæplega einn drykk.

Saksóknarar lögðu einnig fram textaskilaboð og tölvupósta þar sem bræðurnir virtust monta sig af kynferðislegum afrekum og ræða áhrif ýmissa lyfja á hömluleysi kvennanna.

Einn vitnisburður kom frá konu sem sagðist hafa verið nauðgað af Alon Alexander í Aspen árið 2017 þegar hún var 17 ára. Hún sagðist vera dóttir milljarðamærings og hafnaði því að málið snerist um fjárhagslegan ávinning.

Bræðurnir gætu átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi þegar dómur verður kveðinn upp yfir þeim í ágúst næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins

Gúgglaði Epstein klukkustund áður en lík hans fannst – Verslaði húsgögn frekar en að gæta kynferðisglæpamannsins
Pressan
Fyrir 2 dögum

Margir rafbílaeigendur gera þessi mistök í kuldanum

Margir rafbílaeigendur gera þessi mistök í kuldanum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum

Á rigningardegi 1986 lenti verkfræðingur í vanda á bensínstöð – Í dag er lausn hans á vandanum í öllum bílum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Það hvernig þú drekkur kaffi afhjúpar lítt þekkta hlið á persónuleikanum

Það hvernig þú drekkur kaffi afhjúpar lítt þekkta hlið á persónuleikanum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Segja samhengi vera á milli nafns fólks og útlits

Segja samhengi vera á milli nafns fólks og útlits
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ógnvekjandi ummæli heits stuðningsmanns Pútíns – Þessar borgir verða fyrstu skotmörkin

Ógnvekjandi ummæli heits stuðningsmanns Pútíns – Þessar borgir verða fyrstu skotmörkin
Pressan
Fyrir 3 dögum

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“ 

Verður tekinn af lífi á fimmtudaginn en hefur þó engan myrt – „Ég ætti ekki að deyja fyrir eitthvað sem ég gerði ekki“ 
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ráðgátan um prinsana í turninum – Hvað gerðist?

Ráðgátan um prinsana í turninum – Hvað gerðist?