fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Pressan

Móðir horfins barns ákærð fyrir morð

Pressan
Miðvikudaginn 11. mars 2026 21:00

Adrienne og Genesis Reid. Lögreglumynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 16. febrúar síðastliðinn tilkynnti hin 33 ára gamla Adrienne Reid að dóttir hann, 2ja ára gömul Genesis Reid, væri horfin. Atvikið átti sér stað í borginni Enterprise í Alabama, BNA.

Er lögregla kom á vettvang var útidyrahurðin á heimili mæðgnanna opin. Rannsókn leiddi í ljós að Adrienne hafði gefið lögreglu misvísandi yfirlýsingar um hvarf barnsins og var hún því handtekin, ákærð fyrir að ljúga að lögreglunni.

Þann 9. mars, á þriggja ára afmælisdegi litlu stúlkunnar, var Adrienne síðan ákærð fyrir morð og misþyrmingu á líki. Lík barnsins hefur þó enn ekki fundist.

Gögn úr eftirlitsmyndavélum sem lögregla hefur komist yfir sýna Adrienne fara með stóran, fullan poka að ruslatunnum við heimili sitt. Nokkrum dögum síðar kom hún þangað með eigur barnsins, þar á meðal leikföng.

Til stendur að leita að líki stúlkunnar í landfyllingu í borginni. Áætlað er að leitin taki lengri tíma en 10 vikur.

Héraðssaksóknari segist ætla að krefjast dauðarefsingar yfir móðurinni.

Nánar má lesa um málið hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Maður fannst látinn í bifreið sinni – Fyrst grunaði lögreglu ekkert saknæmt en nú hefur eiginkonan verið handtekin

Maður fannst látinn í bifreið sinni – Fyrst grunaði lögreglu ekkert saknæmt en nú hefur eiginkonan verið handtekin
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kínverskir vísindamenn kynna rafhlöðu sem gæti tvöfaldað drægni rafbíla

Kínverskir vísindamenn kynna rafhlöðu sem gæti tvöfaldað drægni rafbíla
Pressan
Fyrir 2 dögum

Varpa sprengju í nýrri mynd um hvarf Madeleine McCann

Varpa sprengju í nýrri mynd um hvarf Madeleine McCann
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ný heimildarmynd endurlífgar umræðuna um andlát Heather O‘Rourke – Hvíldi bölvun á henni?

Ný heimildarmynd endurlífgar umræðuna um andlát Heather O‘Rourke – Hvíldi bölvun á henni?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lengd göngutúrsins getur verið mikilvægari en skrefafjöldinn

Lengd göngutúrsins getur verið mikilvægari en skrefafjöldinn
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óvæntar fréttir af sæðisgæðum karla

Óvæntar fréttir af sæðisgæðum karla