fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Næringarfræðingur borðaði eitt epli á dag í eina viku – Svona brást líkaminn við

Pressan
Laugardaginn 7. febrúar 2026 15:30

Eitt epli á dag bætir heilsuna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar ráð um mataræði eru gefin snúast þau oft um að gjörbreyta því. En rannsóknir og reynsla sýna að smávegis breytingar geti verið betri ef takast á að standa sig við að fylgja nýja mataræðinu.

Miðillinn Prevention segir að næringarfræðingur einn hafi gert einfalda tilraun með mataræðið sitt. Í henni fólst að hann bætti einni ákveðinni matartegund inn í mataræðið sitt í eina viku. Það var epli sem hann bætti inn í mataræðið og borðaði hann epli daglega.

Þetta var ekki vísindaleg rannsókn, heldur frekar praktísk prófun á hefðbundinni næringarfræði.

Markmiðið var að leggja mat á hvort einföld og raunhæf breyting á mataræðinu hefði áhrif, andleg og líkamleg.

Meðalstórt epli inniheldur trefjar, náttúruleg kolvetni og lítið af hitaeiningum. Þar með er epli tilvalið þegar borða á hollan mat.

Áhrif eplaneyslunnar á næringarfræðinginn voru að meltingin batnaði, líklega vegna trefjainnihalds þess. Orkustigið var í betra jafnvægi yfir daginn. Blanda trefja og ávaxtasykurs getur lagt sitt af mörkum til að gera orkulosun jafna. Epli innihalda einnig andoxunarefni sem eru talin veita vörn gegn stressi.

Eplaneyslan hafði einnig áhrif á andlegu hliðina að sögn næringarsérfræðingsins. Hann sagði að það að setja epli inn í daglega rútínu sína hafi valdið tilfinningu um að hann væri skipulagður og lifði hollu lífi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir
Pressan
Í gær

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?

Hvernig gat Angela horfið svona í beinni útsendingu? – Hver ók bílnum?
Pressan
Í gær

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla

Skýr niðurstaða – Börn sem fæðast í þessum mánuði standa sig betur í skóla
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein