fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Flugfreyja varar við algengri og sóðalegri hegðun farþega

Pressan
Laugardaginn 7. febrúar 2026 21:32

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áður en farþegaflugvélar fara í loftið kynnir áhöfnin notkun öryggisbúnaðar um borð fyrir farþegum, þar á meðal hvernig á að spenna öryggisbeltið, hvernig á að nota súrefnisgrímur og björgunarvesti. En farþegarnir eru ekki varaðir við ákveðinni hegðun, sem getur haft slæm áhrif á heilsuna að sögn fagfólks.

Það sem um ræðir er að farþegarnir ganga um vélina á sokkunum eða jafnvel berfættir þegar þeir fara á salernið. Elizabeth Regan, flugfreyja, segir að þetta sé eitt það ógeðfelldasta sem hún upplifi um borð í flugvélum. Lifestyle ao Minuto skýrir frá þessu og hefur eftir Regan að það sé býsna algengt að farþegar geri þetta.

„Farþegar nota salernið allt flugið, sumir hverjir berfættir og aðrir aðeins í sokkum,“ sagði hún.

Eins og flestir geta væntanlega gert sér í hugarlund fer því fjarri að gólf flugvélasalerna séu alltaf hrein. Hilary Clark, sem stýrir þrifaþjónustunni Planet 9, sagði að það sé áhyggjuefni að fólk fari berfætt eða bara á sokkunum á salernið í flugvélum. „Í þjálfuninni hjá okkur, þá kennum við fólki að vökvinn á gólfi flugvélasalerna er oft ekki bara vatn,“ sagði hún í samtali við Huffington Post.

Dahlia Philips, læknir, benti á að þetta snúist ekki aðeins um hreinlæti, heldur geti þetta stofnað heilsu fólks í hættu. Hún benti á að margir noti oft flugvélasalerni á stuttum tíma og það hafi í för með sér að yfirborðsfletir á borð við handfang, vaskinn, krana og klósettsetuna verðir skítugir.

„Að fara þarna inn berfætt gerir að verkum að fæturnir komast í snertingu við bakteríur, veirur og sveppi sem geta borist inn í líkamann í gegnum lítil sár eða sprungur,“ sagði hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar

Fór inn í bíl til að hlaða símann sinn – Fannst látinn skömmu síðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie

Blásaklaus hjón lömuð af ótta – Herjað á þau vegna hvarfs Nancy Guthrie