fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

76 ára gamall maður byrlaði eiginkonu sinni svefnlyfjum svo hann gæti nauðgað börnum í friði

Pressan
Fimmtudaginn 5. febrúar 2026 21:30

Jon Ruben. Mynd: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinn 76 ára gamli Jon Ruben, frá Leicester-skíri á Englandi, kom fyrir rétt í vikunni og svaraði til saka vegna ákæru fyrir byrlun, kynferðisbrot og brot gegn börnum. LBC greinir frá.

Jon Ruben var handtekinn í júlímánuði síðasta sumar í kjölfar þess að átta börn sem dvöldust í sumarbúðum sem hann rak ásamt eiginkonu sinni veiktust alvarlega. Í líkama þeirra allra fundust leyfar af sterku svefnlyfi.

Jon Ruben, sem grét í vitnaleiðslum, viðurkenndi fyrir dómi að hafa byrlað börnunum. Það sem meira var þá viðurkenndi hann líka að hafa byrlað eiginkonu sinni svefnlyf svo hún myndi ekki vakna á meðan hann var að brjóta kynferðislega gegn meðvitundarlausum börnunum.

Hinn ákærði rak þessar sumarbúðir í 27 ár. „Mér þykir þetta svo leitt,“ sagði hann við réttarhöldin, þar sem hann játaði sök samkvæmt ákæru.

Hann byrlaði börunum lyfinu með því að fela það í sælgæti sem börnin komust yfir í svokölluðum sælgætisleik sem leikinn var stundum á kvöldin. Mörg börnin veiktust eftir sælgætisleikinn og börnunum leið yfirleitt illa þegar þau vöknuðu morgun eftir leikinn. Sum gátu ekki vaknað, önnur dröfuðu í tali löngu eftir að þau voru komin á fætur.

Við réttarhöldin kom fram að stjúpsonur ákærða hafði áhyggjur eftir að hann fann í sumarbúðunum barnaolíu, sprautunálar með hvítu efni og fleiri dularfulla hluti.

Refsing yfir Jon Ruben verður ákvörðuð á morgun, föstudag.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér